Vafasamur ávinningur

Haft hefur verið orð á því að menn þurfi að gæta sín þegar byrjað verður að selja eignir Landsbankans sem eiga að standa undir endurgreiðslum vegna Icesave-samninganna.

Er þá ekki hið sama upp á teningnum þegar Orkuveita Reykjavíkur ætlar að selja hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja? Svo virðist sem fjárfestir nokkur hyggist nú grípa tækifærið og kaupa hlut veitunnar á útsöluverði.

Í stjórnartíð Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks rak hvert ógæfuverkið annað. Eitt þessara verka var einkavæðing eða svo kölluð einkavæðing orkufyrirtækjanna. Ísland nýtur þeirrar sérstöðu á Evrópska efnahagssvæðinu að óhægt er um vik að flytja orku frá landinu til annarra landa. Helst eru það Færeyjar sem koma til greina. Þá hafa orkufyrirtækin verið byggð upp fyrir almannafé og markaðurinn leyfir takmarkaða samkeppni. Sú samkeppni sem er nú fyrir hendi á almennum markaði er vart marktæk.

Í raun þurfa stjórnvöld nú að athuga hvort ekki sé hægt að vinda ofan af þessari einkavæðingarvitleysu orkufyrirtækjanna svo að þau verði að nýju í eigu almennings. Þess vegna ætti Hanna Birna Kristjánsdóttir að flýta sér hægt áður en samþykkt verður að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur á brunaútsölu eins og það er kallað. Borgarstjórinn hefur á ferli sínum áður farið undan fjölmiðlafólki í flæmingi þegar gengið hefur verið á hann vegna mála sem þá voru uppi, samanber íbúðabyggð við Samtún. Það endaði illa. Vonandi endar Orkuveitumálið betur.


Bloggfærslur 18. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband