Nýjasta þjóðfífl Íslendinga og vér þessi vitru

Það er með ólíkindum hvaða sótraftar eru dregnir í viðtöl á Rás tvö og þau síðan endurbirt í hádegisfréttatíma Ríkisútvarpsins.

Nýjasta þjóðfíflið virðist vera Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor. Í morgun lýsti hann því fjálglega að þjóðin hefði öll tekið þátt í dálætinu á útrásarvíkingunum, öll þjóðin nema Davíð Oddsson. Hann viðurkenndi meira að segja að hann hefði orðið fórnarlamb þessarar aðdáunar.

Ég þekki fjölmargt fólk sem tók hvorki þátt í dansinum kringum gullkálfinn né dáðist að útrásinni. Það eru til vitni að því að sumarið 2007 datt mér í hug að losa mig við hlutabréf sem upphaflega höfðu verið í Eimskipafélagi Íslands en voru nú komin annað. Af því að ég gerði það ekki tapaði öldruð móðir mín 16 milljónum og eftir stendur lág upphæð sem er nokkuð nærri virði bréfanna í upphafi. Þessar 16 miljónir voru því rafbóla sem sprakk og ég er guðs lifandi feginn að hafa ekki orðið græðginni að bráð.

Hvað á að segja við mann eins og Hannes Hólmstein? Á Biblíumáli yrði hrópað: Þér heimskingjar. Um hina verður sagt: Vér þessir vitru.


Bloggfærslur 24. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband