Grafalvarlegt mál í kreppunni

Ríkisútvarpið greindi frá því í morgun að innan skamms verði slökkt á ofnum sementsverksmiðjunnar á Akranesi enda hafi pantanir á sementi dregist saman um 45%.

Áður fyrr lá það orð á íslensku sementi að það væri ekki eins sterkt og danska sementið eða hið breska sem flutt hefur verið hingað inn. Fyrir nokkru sögðu mér byggingartæknifræðingar að rannsóknir hér á landi hefðu orðið til þess að bæta mjög framleiðslu sementsverksmiðjunnar.

Mér skilst án þess að hafa rannsakað málið, að íslenskt sement sé yfirleitt ekki eða jafnvel alls ekki notað í virkjanir og að ekki sé það flutt úr landi. Hvað veldur? Og ekki er Ráðhúsið í Reykjavík úr íslensku sementi.

Hvað þarf til þess að opinber fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar velji fremur íslenska sementsframleiðslu en erlent sement?

Fróðlegt væri að fá skoðanir þeirra sem þekkja málavöxtu til hlítar.


Bloggfærslur 25. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband