Um sama leyti var því einnig lýst að tekist hefðu samningar við erlenda banka um að fjármagna álverið.
Andri Snær Magnason kom síðan fram í Ríkisútvarpi allra landsmanna í dag og hvatti fólk til að doka við og hugsa. Álver, sem á að framleiða 360.000 tonn af ái á ári þarf álíka mikla orku og kemur frá Kárahnjúkavirkjun, stærstu virkjun sem Íslendingar hafa reist. Álverið í Helguvík virðist þurfa alla virkjanlega orku á Reykjanesi og um sunnanvert landið.
Hið sama er upp á teningnum vegna álversins á Bakka við Húsavík, en minni álver en 360.000 smálestir eru nú vart talin borga sig.
Mér er tjáð að álverið í Helguvík útvegi 400 manns störf. Afleidd störf verða væntanlega varla í sama hlutfalli og fyrir austan enda er þjónusta á sunnanverðu landinu mun þróaðri og fjölbreyttari en þar.
Miðað við þá mannfæð sem fær störf í væntanlegu álveri eða álverum hljóta menn að spyrja sig til hvers eigi að ráðstafa orkunni í landinu? Á að gera Ísland að álveraeyðimörk þar sem séð verður til þess að öll endurnýjanleg orka fari til álversframleiðslu í stað þess að laða hingað fjölbreyttan þekkingariðnað eða iðnað sem er smærri í sniðum, útvegar fleira fólki atvinnu og nýtir betur hugvit fólks.
Það verður að stöðva þessa hringavitleysu sem er að verða í Helguvík. Til þess duga hvorki skemmdarverk né blótsyrði. Til þess dugar einungis hugarflug og vilji til að skapa í stað þess að tapa.
Nú þegar kreppir að bitnar það einna helst á fötluðu fólki og öðrum sem hafa lágar tekjur. Nú þegar kreppir að dettur stjórnvöldum fátt annað í hug en að eyða orku landsins í einhæfa stóriðju.
Í fyrra efndi Björk Guðmundsdóttir til merkilegrar umræðu um nýsköpun. Hvar eru nú allar hugmyndirnar? Til hvers var stofnað til umræðunnar? Hlustuðu hvorki fjárfestar, stjórnvöld né forystumenn atvinnulífsins?
Stjórnmál og samfélag | 13.9.2009 | 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 13. september 2009
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 320108
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar