Yfirburðasigur Sjálfstæðisflokksins í vændum á Seltjarnarnesi í vor

Nú eru dagar Bæjarmálafélags Seltjarnarness senn taldir. Einungis kraftaverk getur bjargað félaginu að sögn eins stofnanda þess.

Samfylkingarfélagið á nesinu ákvað fyrir nokkru að kljúfa sig út úr félaginu og bjóða fram. Bæjarmálafélag Seltjarnarness hélt sínu striki og efndi til prófkjörs í síðasta mánuði. Á listanum var fólk úr röðum VG, Framsóknar og óháðra.

Nú hafa þær fréttir borist að framsóknarmenn ætli að bjóða fram ásamt óháðum og má því telja víst að dagar félagsins verði senn taldir.

Ýmsum stofnendum félagsins svíður þetta og telja með ólíkindum að andstæðingar Sjálfstæðisflokksins skilji ekki að skipulegt andóf sé vænlegast til árangurs. Einn þeirra orðaði það svo að nú hygðist hann kjósa Sjálfstæðisflokksins. Hann vissi hvað væri í boði og vildi gjarnan stuðla að yfirburðasigri jafnágætrar konu og Ásgerðar Halldórsdóttur gegn sundrungaröflunum.


Gagnrýni fyrrum stjórnarmanns LÍÚ á fiskveiðikerfið

Emil Thorarensen, sem gegndi um árabil trúnaðarstörfum innan LÍÚ, skrifar grein í Morgunblaðið í dag, 27. mars. Þar gefur hann ýmsum á baukinn eins og móðir hans, Regína Thorarensen, fréttaritari til margra ára, var svo þekkt fyrir. Grein Emils er athyglisverð fyrir þá sök að hann þekkir innviði sjávarútvegsins flestum betur ogveit því um hvað málið snýst. Þótt hann höggvi ótt og títt hlífir hann þó ýmsum, enda er þekkt að ættmenn hans níðast ekki á föllnum einstaklingi. Ritstjóri þessa bloggs sér ástæðu til að birta grein Emils orðrétta.

"SJÁLFSTÆÐIS- og Framsóknarflokkur hafa fyrir löngu gengið fyrir björg hvað varðar þjónkun við sægreifana og einkaeign þeirra á sjávarfangi. Áðurnefndir flokkar ásamt hinum stjórnmálaflokkunum hafa staðið á bak við stærsta rán Íslandssögunnar, þ.e. þjófnaðinum á sameiginlegri auðlind, fiskimiðum þjóðarinnar, sbr ummæli Hilmars Bjarnasonar á Eskifirði, sem fyrstur manna talaði um kvóta á veiddan fisk, en engan veginn í þeim anda sem stjórnmálamenn Íslands aflöguðu svo herfilega, og nefndur Hilmar Bjarnason bað svo eftirminnilega um að nafn hans væri ekki kennt við kvóta síðar meir.

Einkunnarorð sjálfstæðismanna: „Gjör rétt, þol ei órétt“ hefur enginn eins fótum troðið og hin einkavædda forysta Sjálfstæðisflokksins sl. 20 ár og gjörir enn svo og framsóknarmenn og fleiri flokkar, stuttbuxnadrengirnir, kúlulánagæjarnir, sérfræðingarnir, ráðgjafar, að ógleymdum greiningardeildum Glitnis-, Lands-, KB-banka. Ekki stendur steinn yfir steini svo vægt sé til orða tekið.

Merkustu sjávarútvegsráðherrar Íslands hafa verið Lúðvík Jósepsson, Steingrímur Hermannsson, Matthías Bjarnason og Jón Bjarnason. Hættulegustu sjávarútvegsráðherar Íslandssögunnar hafa verið Kristján Ragnarsson, Halldór Ásgrímsson, Þorsteinn Pálsson, Árni Mathiesen og Einar K. Guðfinnsson, hafa allir fallið í þá gryfju að verða handbendi LÍÚ-klíkunnar. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, var reyndar aldrei í ríkisstjórn en stjórnaði kröftuglega á bak við tjöldin og var því í raun ráðherra sjávarútvegsmála. Það vita allir og honum tókst að blekkja sjálfan Davíð.

Þeir valdamiklu stjórnmálaskörungar Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson létu glepjast af formanni LÍU, sægreifunum, ekki síður en útrásarvíkingunum. Forseti lýðveldisins Ólafur Ragnar beit svo margoft höfuðið af skömminni árum saman með ferðalögum sínum og þjónkun við óreiðupakkið, sem komið hefur almenningi á kaldan klaka. Ólafur má þó eiga það að hann tók nýjan pól í hæðina í ársbyrjun og synjaði staðfestingu á Icesave, og skaut því til almennings.

Davíð, Halldór og Ingibjörg, Hvar er ykkar ábyrgð? Líður ykkur vel í hjarta ykkar vegna starfa í almenningsþágu? Ég vil þó þakka þeim fyrir stuðninginn við Kárahnúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði. Það er góður minnisvarði um þessa annars ágætueinstaklinga, sem vissulega hafa örugglega reynt að láta gott af sér leiða eins og brjóstvitið leyfði.

Hvað varð um slagorð sjálfstæðismanna: Stétt með stétt? Hvað um áform fv. formanns Framsóknarflokksins um að gera Ísland að forystuveldi heimsins í fjármálaumsvifum og að skipa Sigurð Einarsson KB- stjórnarformann til að leiða málið?

Það er staðreynd að mestu spillingar- og svikamál Íslandssögunnar eru meira og minna tengd Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki. Halldór þekkir þetta í gegnum SÍS. Hugsunin hjá Jónasi frá Hriflu var skynsamleg og falleg en Sambandið át sig innan frá og fall þess varð mikið. Hin unga Samfylking kemur svo á hælana, einkar efnileg í sama óheillageiranum og verður enginn eftirbátur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Nytjastofnar í sjónum umhverfis Ísland eru ekki bara sameign þjóðarinnar, í orði, eins og Jón Baldvin náði þó að koma inn í lögin um stjórn fiskveiða, heldur líka á borði. Nú hefur Strandamaðurinn og stjórnmálamaðurinn sterki, Jón Bjarnason, komið á strandveiðum og auk þess krukkað í það allra heilagasta hjá LÍÚ-forystunni, nefnilega einkaréttinn yfir veiðunum á fiskistofnum á Íslandsmiðum. Skötuselurinn og strandveiðarnar brjóta ísinn. Þökk sé Jóni og hans góða ráðgjafa Guðjóni Arnari Kristjánssyni, sem ekki fæddist með silfurskeið í munninum, en gerir sér fulla grein fyrir um hvað lífið snýst og hvernig halda á eðlilegu lífi í landsbyggðinni.

Hryggilegustu dæmi og jafnframt ömurlegustu, er að finna í skjóli sálfstæðis-, framsóknar- og samfylkingarmanna sem barist hafa fyrir kvótakerfinu með oddi og egg og ætla ekki að láta deigan síga. Það mun vonandi brátt heyra til liðinni tíð að sægreifarnir geti í vellystingum skammtað til hægri og vinstri hverjir mega veiða, á hvaða verði og látið leiguliðana í sjávarútvegi lepja dauðann úr skel.

Höfundur er sjálfstætt starfandi og er fyrrv. stjórnarmaður LÍÚ.“


Bloggfærslur 27. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband