Erlend lán og gengistryggð

Dómar Hæstaréttar hafa einatt valdið glundroða í samfélaginu. Þótt þeir hafi á stundum verið afdráttarlausir eins og í gengistryggingarmálinlu og öryrkjamálinu árið 2000 hafa þeir þó skilið eftir ýmis atriði sem menn hafa talið sig þurfa að túlka.

Hefði fólk fengið í hendurnar ávísun á erlendan gjaldeyri og selt hana til þess að greiða með húsnæðis- eða bílalán, hefði þetta sama fólk þurft að kaupa gjaldeyri í hvert skipti og greitt var af lánunum. Þá hefði skuldabyrðin vaxið talsvert þegar gengið féll, en launin voru víst ekki gengistryggð.

Þótt ljóst sé að dómur Hæstaréttar komi ýmsum vel en auki um leið misréttið í garð annarra verður á það að líta að þeir sem tóku myntkörfulánið lifðu í þeirri trú að vextir af þeim yrðu lægri en innlendir vextir og jafnvel reiknaði starfsfólk bankanna út fyrir lántakendur hversu mikið krónan mætti falla til þess að erlendu lánin yrðu óhagstæðari.

Um miðja síðustu öld tók Slippurinn í Vestmannaeyjum erlent lán og hækkaði það jafnt og þétt eftir því sem gengi krónunnar lækkaði. Enginn talaði þá um gengistryggt lán heldur sættu menn sig við gengisfellingarnar og þær afleiðingar sem þær höfðu.

En rétt skal vera rétt. Erlend lán skulu vera í erlendum gjaldeyri og reiknast samkvæmt því. Innlend lán verði þá innlend lán og reiknist í íslenskum krónum án gengistryggingar. Svo einfalt er það. Er það einhver goðgá þótt lágstéttirnar græði? Svo spurði Styrmir Gunnarsson og er sú spurning endurtekin hér.

Gallinn er bara sá að sumir úr lágstéttunum tóku innlend lán og sitja eftir í súpunni. Einhverjir verða einhvern tíma að taka afleiðingum gjörða sinna.


mbl.is 350 milljarða tilfærsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband