Samkynhneigðir eða kynvilltir feðgar?

Oft hefur verið haft orð á því að umræðan á Íslandi sé talsvert á eftir því sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Færeyingar hafa minnst á við höfund þessa pistils að hið sama gildi að sumu leyti um viðhorf og umræðurnar í Færeyjum, þau séu stundum á eftir því sem orðið hefur á Íslandi. Ekki verður alhæft í þessum efnum því að Færeyingar hafa staðið okkur mun framar á ýmsum sviðum.

Hegðan nokkurra stjórnmálamanna Færeyinga og fordómar, byggðir á vanþekkingu og trúarofstæki, minnir á feðga sem við mæðginin höfðum í fóstri um nokkurt árabil.

Við mamma erfðum tvo naggrísi, karldýr sem hét Snjólfur og sambýliskonu hans. Ég man ekki hvort hún átti sér eitthvert nafn. Kvendýrið fékk lungnabólgu eftir got og drapst. Okkur tókst að gefa alla ungana sem eftir lifðu nema einn, sem nefndur var Syrtlingur. Var hann Snjólfi, feður sínum til halds og trausts.

Þegar syrtlingur eltist kom í ljós að hann var samkynhneigður og var því augljóst samkvæmt tíðarandanum að í balanum þeirra var framið tvenns konar brot: sifjaspell og kynvilla. Við mæðginin höfðum í aðra röndina dálítið gaman af þessu en urðum stundum að skilja þá feðga að þegar atgangurinn varð sem mestur.

Nú er mér spurn. Hvort voru þeir feðgar kynvilltir eða samkynhneigðir?

Hví er samkynhneigð talin óeðli á meðal manna úr því að hún telst eðlileg á meðal annarra spendýra?

Trúarofstækið er alls staðar samt við sig. Kristur var umburðarlyndur og réttsýnn. Hvergi hef ég séð að hann hafi fordæmt samkynhneigða Gyðinga. Hann braut í bága við grimmilegar hefðir samfélagsins, líknaði þeim sem smáðir voru og upphóf þá sem minnimáttar töldust. Ofstæki í trúarefnum á ekkert skylt við kristilegt siðgæði og hið sama á við um fleiri trúfélög. Ofstæki leiðir hvarvetna til árekstra og böls. En ef til vill verður það gæfa Færeyinga að hugdjörf Jóhanna skirrist ekki við að ganga á hólm gegn fordómum, hvar sem þeir birtast.


Bloggfærslur 7. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband