Óskemmtileg dæmi um græðgisvæðingu

Á fimmtudaginn var greindi Ríkisútvarpið frá því að ein ástæða þess að þeir Orkuveitumenn hafa farið fram með þvílíkum flumbrugangi og raun ber vitni til þess að sameina Geysi Green og energy Invest sé sú að senn verði orkulögum breytt og þessir gjörningur verði að hafa tekið gildi áður.

Víða fara orkufyrirtækin og aðrir stóratvinnuveitendur sínu fram. Á Indlandi, fjölmennasta lýðræðisríki heims, hafa heilu ættbálkarnir verið hraktir af lendum sínum vegna þess að einkafyrirtæki höfðu keypt landið undir orkuver eða verksmiðjur. Óþarft er að minnast á hremmingar sem Núbíumenn urðu fyrir í Egyptalandi þegar áin Níl var virkjuð hér um árið. Vandi þeirra hefur enn ekki verið leystur og þeir eru nú sem reköld í eigin landi.

Í Kína gerðist það fyrir nokkrum árum að orkufyrirtæki hugðist sölsa undir sig land sem var í eigu bænda sem búa skammt frá borginni Jingzhow suður af Beijing. Bændurnir treystu ekki loforðum um betri framtíð og neituðu að selja landið.

Fyrirtækið sendi hóp vopnaðra manna til þorpsins. Til bardaga kom og lágu 6 eða 8 þorpsbúar í valnum áður en hermdarverkamennirnir héldu á braut.

Málið spurðist út og var höfðað mál gegn fyrirtækinu. Bændurnir unnu málið og héldu landinu.

Nú berast þær fregnir að lögregla héraðsins hafi einangrað þorpið og ýmsum býður í grun að nú eigi að rýma landið undir einhvers konar verksmiðjustarfsemi. Þarnavilja menn hafa hraðar hendur því að ný lög voru samþykkt um eignarrétt á landi og taka þau gildi nú innan skamms. Ætli einhverjir vilji ekki tryggja sér eignarhaldið áður en heimildirnar til þess verða þrengdar!

Þeir eru víða, spilltu embættismennirnir. Munurinn á Íslandi og hinum fjölmennu ríkjum Asíu er sá að hér á landi komast þessi mál fyrr í hámæli og ef til vill er hægt að stemma stigu við græðgisvæðingunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband