Kvöldstund með Ódó - snilldarverk

Í kvöld flutti Útvarpsleikhúsið einleikinn Kvöldstund með Ódó eftir Ásdísi Thoroddsen. Tónlistina samdi Bára Grímsdóttir og með hlutverk ódórinnar fór Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Ásdís leikstýrði sjálf.

Leikurinn fjallar um unga konu sem er hafnað og verður sér úti um skollabrók, nábrók eða gjaldbrók, allt eftir því hvað fólk vill nefna þetta þjóðlega fyrirbrigði.

Hún notar brókina með margvíslegum hætti, tekur þátt í græðgisvæðingu alheimsins en fellur svo eiginlega á eigin bragði.

Ég skora á þá örfáu sem lesa þetta blogg mitt að hlusta á leikritið á vef ríkisútvarpsins. Þetta er skemmtileg alþjóðaádeila með þjóðlegu ívafi.

Ásdís hefur leikstýrt ýmsum verkum fyrir ríkisútvarpið. Eitt sin lék hún eiginkonu Jóns Lærða Guðmundssonar, sem reit varnarritið gegn Spánverjavígunum. Þar tókst henni að túlka afar trúverðuga alþýðukonu fyrri alda, en það er eins og suma yngri leikarana vanti tengslin við fortíðina til þess að geta gert slíku skil. Ásdís stendur vel í ístaði fortíðar og nútíðar.

Til hamingju með þetta snilldarverk, Ásdís!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband