Þetta eru bara krakkar!

Það er athyglisvert að fylgjast með framvindu mála innan borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins og þeim skaða sem flokkurinn hefur orðið fyrir að undanförnu.

Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að Davíð Oddsson hafi hvatt Vilhjálm til að sitja sem fastast og taka við embætti borgarstjóra að ári.

Þegar sjálfstæðismenn eru spurðir hvað þeim finnist um þessa skoðun Davíðs skiptast þeir í tvo hópa. Annar hópurinn heldur því fram að rétt sé að yngra fólkið taki við. Hinn heldur því fram að Gísli Marteinn og Hanna Birna séu bara krakkar!

Ef til vill er hvorugt þeirra Gísla og Hönnu Birnu nægilega virðuleg til að geta gerst borgarstjóri að mati sumra miðaldra sjálfstæðismanna. Ætli það breytti einhverju ef þau breyttu nú um stíl og kæmu fram að meiri virðuleik? Ekki voru þeir Geir Hallgrímsson og Bjarni Benediktsson mjög gamlir þegar þeir komust til æðstu metorða innan flokksins, eða þá Gunnar Thoroddsen. Að vísu var engin þeirra kona.

Hvað þarf til að krakkarnir í Sjálfstæðisflokknum verði fullorðið fólk? Spyr sá sem ekki veit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband