Heldur vænkast hagur strympu

Í fyrradag rann upp fyrir mér að engin umsókn frá mér um starf væri í vinnslu neins staðar. Sem sagt, allar mínar umsóknir árangurslausar.

Það gladdi mig því meira en orð fá lýst þegar ég fékk tölvupóst í morgun frá starfsmannastjóra Morgunblaðsins þar sem mér og fleira fólki var boðið sumarstarf hjá blaðinu.

Auðvitað þá ég starfið enda naut ég þess að vinna þar í fyrra. Það er því full ástæða til að líta björtum augum til sumarsins á þessum sólríka degi. Með öðrum orðum er ég í sólskinsskapi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Hildur Kolbeins

Til hamingju með það.

Guðbjörg Hildur Kolbeins, 21.2.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband