Nýir tímar - gleðiblogg

Grétar Þorsteinsson, hinn mæti forseti ASÍ, sagði í gær að það Ísland, sem við vöknuðum til í dag, yrði ekki hið sama og það sem við sofnuðum frá í gærkvöld.

Hafi ég vaknað í morgun í breyttu þjóðfélagi vona ég að ég sé orðinn nýr og betri Íslendingur og svo sé um flesta þá sem búa hér. Þá læðist að mér sú gleðihugsun að nýir tímar séu í vændum þar sem hugað verði meira að hinum félagslegu gildum en verið hefur um sinn.

Fari allt á besta veg læra einkaframtakið og félagslegu öflin að vinna saman og menn gera sér grein fyrir ábyrgðinni sem þeir þurfa að axla. Um leið gera þeir sér grein fyrir því að þeir eru hluti heildarinnar og öflug samfélagsþjónusta skiptir máli.

Geti ég eitthvert gagn gert á næstu árum geng ég glaður til verka og þessu líkt hugsa vafalaust flestir um þessar mundir.

Enginn er eyland. Gleðilega hátíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilega hátið!

Og nú kemur þa vel á vondan að þurfa að leita eftir Rússagulli. Sú var tíðin að það þótti nálgst landráð.

Emil (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband