Fílabeinsturn ráherrans

Mér barst tölvupóstur áðan sem ég set innan tilvitnunarmerkja. Þar kemur fram að viðskiptaráðhera virðist annaðhvort hafa verið grandalaus um það sem var í vændum eða lokað bæði augum og eyrum fyrir því sem var að gerast og þegar hafði verið skrifað um í blöðum eins og Morgunblaðinu.

"Eftirfarandi var sent á skrafsíður starfsmanna HÍ og LbhÍ. Sendandinn var Gísli Már Gíslason prófessor í líffræði. Björgvin Guðni Sigurðsson Gullkorn af heimasíðu ráðherra (Síðunni hefur nú verið lokað) 5. ágúst 2008 Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það. Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar. Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma. Í árslok 2006 má ætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás sjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi. Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredirik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðan er sú að gagnrýnin var að verulegu leiti tilhæfulaus. Hinsvegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra. Samskonar gagnrýnir skýtur upp kollinum á nú í kjölfar þeirrar lausafjárkreppu sem kennd er við undirmálslán. Hún er þó ekki einskorðuð við íslenska banka, þar sem vandinn er alþjóðlegur. Athygli vekur þó að háværasta gagnrýnin kemur frá samkeppnisaðilum bankanna á erlendum vettvangi. Löngum hafa sérfræðingar Danske bank haft horni síðu íslensku bankanna en fyrir skemmstu bættust Finnskir bankamenn í “grátkórinn”. Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti. Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskir bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafi sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða. Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslensku bankakerfið sé mjög stöndugt. Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leiti til sem finnskar reglur þar að lútandi veita betri réttindi en íslenkar myndu bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einvherjir bankar kæmust í lausafjárskort. Því er rétt að halda því til haga sem rétt er þegar reynt er að kasta rýrð á fjármálastofnanir okkar þegar kreppir að. Til að fara yfir stöðuna og til að efla samvinnu stjórnvalda og fjármálafyrirtækja um fjárfestingar erlendis mun Viðskiptaráðuneytið kalla til fundar með Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs í janúar. Ætlunin er að skapa varanlegan vettvang fyrir slíkt samstarf og verður janúarfundurinn fyrsta skrefið í þá átt. BjorgvinGSig Heimasíðu Björgvins G. Sigurðarsonar "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

   Þessi skrif Björgvins lýsa vel hversu bláeygður og óhæfur hann er til að genga því ráðherraembætti sem hann gegnir í dag.  Það verður að segjast að hann hefur annsi oft verið staðinn að því að blaðra og gefa yfirlýsingar er ekki nokkur fótur er fyrir, er skemmst að mynnast er hann lýsti yfir að kvöldi dagas að allir starfsmenn Landsbankans héldu vinnu sinni, en að morni var 300 þeirra sagt upp.  Það er dapurlegt hlutskipti okkar íslendinga að sitja uppi með jafn óburgðuga ráðherra og raun ber vitni á þessum erfiðu tímum.

haraldurhar, 24.10.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband