Rauðsól og Árvakur

Í hádeginu sagði Ríkisútvarpið frá því að Rauðsól, félag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesssonar, hefði keypt fjölmiðla 365 miðla og þar með 36% hlut fyrirtækisins í Árvakri sem á Morgunblaðið. Þótt hér sé vissulega um grafalvarleg tíðindi að ræða eru á því grátbroslegar hliðar.

Árið 1972 var eitt vinsælasta lagið í Kína „Mao formaður, þú ert hin rauða sól hjartna vorra“. Það var lag í svipuðum stíl og Sjá dagar koma og hófst með forleik sem var vitnað í upphafsstef lagsins Austrið er rautt.

Nú á eftir að vita hvort Samkeppnisyfirlitið samþykki þennan gerning, en til skamms tíma litið gæti þetta orðið til þess að styrkja miðlana. Reyndar má búast við einhverjum breytingum í kjölfarið.

Fjölmiðlar greindu einnig frá því um helgina að þeir Jón Ásgeir og Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, teldu að fyrirtækið hefði kreppuna af og gæti komið Íslendingum til aðstoðar.

Ég hef ævinlega haft vissa samúð með þeim feðgum, Jóhannesi og Jóni Ásgeiri í baráttu þeirra við ofstækisöflin í Sjálfstæðisflokknum. Sennilega stafar það m.a. af því að fjölskylda mín kynntist slíkum tilþrifum á 5. og 6. áratugnum og þau hefðu getað endað með ósköpum hefði Ólafur Thors ekki gripið í taumana.

Það skildi þó aldrei verða að Jón Ásgeir yrði hin rauða sól hjartna þeirra sem stýra helstu fjölmiðlum landsins?

Árvakur merkir þann sem árla rís úr rekkju og vakir yfi eignum sínum. Rauðsól hlýtur að merkja fremur morgunroða en kvöldroða. Ég vona að ég guðlasti ekki þótt ég endi pistilinn svona:

Guð láti á gott vita!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband