Stuðningsmenn Guðna stofna nýjan stjórnmálaflokk

Nú er unnið að því að mynda nýjan frjálslyndan stjórnmálaflokk sem reistur verður á rústum Framsóknarflokksins, en búist er við að hann klofni eftir flokksþingið í janúar.

Talið er ólíklegt að Guðni verði formaður flokksins en Siv Friðleifsdóttir hefur verið nefnd sem hugsanlegur formaður. Náinn stuðningsmaður og vinur Guðna Ágústssonar sagði heimildamanni bloggsins að hún væri talinn sá af fyrrum ráðherrum Framsóknarlokksins sem tengdist einna síst þeirri spillingu sem ríður nú Framsóknarflokknum senn að fullu.

Lesendur bloggsins hafa áttað sig á að ýmis tíðindi, sem spáð hefur verið í íslenskum stjórnmálum hér á þessum síðum hafa gengið eftir og er því rétt að benda mönnum á að fylgjast grannt með skrifum sem birtast á síðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband