Sannleikurinn afhjúpaður

Þeir sem hafa áhuga á þjóðmálaumræðu og staðreyndum ættu að lesa samantekt Morgunblaðsins um ummæli fjölmargra um íslensku bankana. Birt eru nokkur ummæli Ragnars Önundarsonar og fleiri auk fullyrðinga manna eins og Geirs Haarde, Davíðs Oddssonar, Jónasar Fr. Jónssonar og Þorgerðar Katrínar gunnarsdóttur um bankakerfið og gagnrýnendur þess. Miðað við það sem Davíð Oddsson segist hafa vitað er sannleikurinn um hann einna verstur og engu skárri er hlutur Jónasar. Niðurstaðan er 0 í einkunn. Því verður vart trúað að samtryggingamafían á Íslandi sé svo sterk a hún standist það áhlaup sem hlýtur að verða gert á hana úr öllum flokkum. Hreinsa þarf til. Þá er pistill Guðfríðar Lilju um hringekjuna einkar skemmtilegur og athyglisverður.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Tek undir þetta.  Og þá vaknar spurningin: Var þetta fólk svona bláeygt að sjá ekki hvert stefndi eða var það hagsmunatengd eða pólitísk blinda sem byrgði því sýn?

Þórir Kjartansson, 23.11.2008 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband