Ljúf stund í Salnum

Í gærkvöld kynntu þeir Jónas Ingimundarson og Kristinn Sigmundsson Vetrarferðina eftir Schubert í Salnum í Kópavogi. Var rakið efni ljóðanna og farið yfir hvernig píanóið túlkar ýmis áhrif umhverfisins svo sem lauffall, regn, göngu, misjafna lund sögumannsins, ónýtan lýrukassa o.fl. Þessi stund var ljúf og greinilegt að margir nutu kynningarinnar í ríkum mæli enda var vel að verki staðið. Hafi þeir félagar heila þökk fyrir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vissi nú bara ekki af þessu. Vetrarferðin er reyndar ekki ljúft verk. Hún er harmsaga mikil og gengur mjög nærri áheyrendum. En

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.1.2009 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband