Ástríður Alda Sigurðardóttir í Salnum

Stundum fell ég í stafi þegar ég hlýði á píanóútsetningar verka sem upphaflega voru samin fyrir orgel eða sinfóníuhljómsveit.

Í dag flutti Ástríður Alda Sigurðardóttir m.a. 5 sálmaforleiki eftir J.S.Bach sem umritaðir höfðu verið fyrir píanó. Var sem hún væri með þrjár hendur, slík var leikni hennar.

Af hverj ætli svona frábær manneskja sé ekki heimsfræg? spurði vinkona mín í hléinu. Gat ég ekki svarað því. Sögðu einhverjir að ef til vill ætti hógværðin þar einhverja sök.

En hvað sem líður allri hógværð, heimsfrægð og leikni voru þetta unaðslegir tónleikar og var Ástríði Öldu klappað lof í lófa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband