Getur verið að hagsmunir vina bæjarstjórans á Seltjarnarnesi séu mikilvægari hagsmunum bæjarfélagsins?

Miðvikudaginn 29. nóvember sl. birtum við Bjarni Dagur Jónsson blaðagrein í Mbl. sem við suðum saman um landfyllingarmálið á Seltjarnarnesi. Eins og kunnugt er hefur Þyrping áhuga á að gera 2,2 hektara fyllingu út frá Norðurströnd á Seltjarnarnesi og koma þar fyrir þremur þjónustu- og verslunarbyggingum, 5-7 m háum. Við ákváðum að ganga fram af djörfung og kurteisi í grein þessari og benda á vissar staðreyndir í málinu. Ein er sú að verslun Bónus hættir rekstri á Seltjarnarnesi, verði ekki af landfyllingunni, fáist ekki hentugt húsnæði.

Við félagarnir bentum á í greininni að Eiðistorg hentar mun betur sem stjórnsýslu- og menningarmiðstöð og flutningur verslunar af torginu á landfyllingu þá sem fyrirhuguð er, létti umferð af íbúðargötunni Nesvegi og eru þá einungis örfá atriði talin.

Ég hef nú lært margt eftir að þessi grein var skrifuð. Ein er sú staðreynd að bæjarstjóri Seltirninga, Jónmundur Guðmarsson, virðist leika tveimur skjöldum í þessu máli. Hann vissi um þessi áform Þyrpingar löngu fyrir síðustu kosningar en þorði eða vildi ekki ræða þessa beiðni Þyrpinga, enda höfðu Þyrpingarmenn víst lítinn hug á að gera málið að bitbeini í bæjarstjórnarkosningum.

Það hefur vafalaust ekki skotið bæjarstjóranum skelk í bringu að frétta að Kaupás, (eigandi BYKO) hyggist reisa verslunarmiðstöð í Örfirisey og fara þangað með lágvöruverslunina Krónuna.

Telst því líklegt að bæjarstjóranum þyki Seltirningum verða lítið fyrir að fara þangað að leita sér ódýrra nauðsynja. Þeir sem fylgdust með prófkjöri sjálfstæðismanna á haustdögum sáu m.a. forstjóra Byko og bæjarstjórann á Seltjarnarnesi saman í stuðningsliði nokkurra frambjóðenda, en vitað er að forstjóri Bykó og bæjarstjórinn eru æskuvinir.

Þess vegna er nú spurt: Gengur bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi erinda Kaupás (sem á Krónuna) og skipuleggur Bónus útaf Seltjarnarnesi svo að rúm verði fyrir Krónuna á vestursvæði höfuðborgarsvæðisins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband