Skemmtiferð að Persaflóa

Í DV er sagt frá því í dag að nokkrar eiginkonur íslenskra útrásarvíkinga séu á leið í skemmtiferð til eins furstadæmisins við Persaflóa.

Í greininni er m.a. tíundað hvað gistinótt á hóteli kosti á þeim slóðum en verðið fyrir eins manns herbergi er um 62-100.000 kr á nótt. Ástæða er til að gleðjast yfir því að fólk, sem flestir héldu að hefði misst allt sitt, eigi enn fyrir skemmtiferðum af þessu tagi. Ekki veitir fólki af hugsvölun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta Bakkavarar/Kaupþings-útrásarvíkingalið hefur væntanleg skotið milljörðum undan til skattaparadísa fyrir ,, mögru árin " til að halda kellingunum sínum feitum og sælum.

Stefán (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband