Hugmyndir um nýtt framsóknarmálgagn

Í dag barst okkur, nokkrum gömlum bekkjarbræðrum úr MR, tölvupóstur frá Magnúsi Karel Hannessyni, fyrrum borgarstjóra og einvaldi á Eyrarbakka. Voru þar á ferðinni nokkur tölublöð Dreifbýlistíðinda sem hann gaf út fyrir tæpum 40 árum, en þau voru eitt fjölmargra blaða sem gefin voru út í bekknum.

Þessi sending rifjar upp ýmislegt sem gekk á og gerðist í B-bekk MR á þessum árum. Sumir hafa orðið svo glaðir að þeir telja að nauðsynlegt sé að endurvekja Dreifbýlistíðindi á vefnum og hafa meira að segja heyrst þær raddir að blaðið verði notað til að styrkja Framsóknarflokkinn:.


Uppsagnir á Stöð tvö

Í morgun bárust fréttir af því að Sigmundi Erni Rúnarssyni, fréttastjóra Stöðvar tvö og eiginkonu hans hefði verið sagt upp störfum. Þá hefur þáttagerðarmönnum einnig verið sagt upp störfum.

Sigmundur Ernir lætur að því liggja að reynslulitlir stjórnendur, sem hafi verið ráðnir að stöðinni, þoli ekki fólk með reynslu í kringum sig.

Þetta er leitt. Og það er leitt að bjóða þau hjónin velkomin í hóp reyndra stjórnenda sem reynslulitlir forráðamenn þola ekki.

Minnimáttarkenndin er mikils megnug en hefnir sín fyrr eða síðar. Þeim hjónum og öðrum, sem hafa orðið að sæta þessum örlögum, er óskað velfarnaðar.


Hugmyndir um Þingrof

Nú fer sá orðrómur fjöllunum hærra að Sjálfstæðismenn velti því nú alvarlega fyrir sér að Geir rjúfi þing og sitji stjórnin fram að kosningum. Vafalaust er skýringin sú að engum öðrum en ríkisstjórnarflokkunum sé treystandi til að stýra þjóðarfleyinu framhjá þeim boðum sem framundan eru. Samfylkingin er sögð tvístígandi í málinu.


Ofbeldismenn hafi hemil á sér

Ég hef fylgst af áhuga með mótmælum undanfarinna daga. Sjálfur hef ég því miður ekki átt þess kost að fara niður á Austurvöll. Greinilegt er að mótmælin eru að bera árangur. Nokkrir skemmdarvargar verða ævinlega til að kasta rýrð á friðsama mótmælendur. Það nær ekki nokkurri átt að hvetja til þess að lögreglumenn eða starfsmenn ríkisins verði fyrir einelti eða áreitni á heimilum sínum vegna hvatningar ofbeldismanna. Verði hið nýja Ísland lögregluríki er það þessum skemmdarvörgum að kenna.

Áfram með friðsöm mótmæli! Látum í okkur heyra og knýjum fram breytingar með rökum en ekki ofbeldi!


mbl.is Nafnbirtingin grafalvarlegt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignast útlendingar Árvakur?

Nú benda líkur til að erlendirfjárfestar eignist Árvakur. Vafalítið hafa ýmsir áhyggjur af þessu. Á hitt ber þó að líta að hugsanlegt er að nauðsynlegt fjármagn fáist með þessu móti til þess að styrkja innviði fyrirtækisins og efla vanburðugan banka. Hvernig sem allt veltist vona ég að ekki verði vegið að grunnstoðum íslenskrar fjölmiðlunar. Á umbrotatímum sem þessum þurfum við á sterkum fjölmiðlum að halda og það er vel að einhverjir trúi á fjárfestingar hérlendis.


Dagar ríkisstjórnarinnar taldir

Samfylkingarfélagið í Reykjavík samþykkti að slíta verði stjórnarsamstarfinu og efna til kosninga.. Þar með eru dagar stjórnarinnar taldir því að Rangæingar eru sama sinnis.

Ríkisstjórnin í andarslitrunum

Þingfundi hefur verið frestað. Sagt er að nú semji forystumenn ríkisstjórnarinnar um framhaldið og búist sé við tíðindum jafnvel síðar í dag eða á morgun. Jafnvel hefur heyrst talað um þingrof.

Gjáin milli þjóðar og ríkisstjórnar

Þegar rýnt er í orsakir mótmælanna á Austurvelli í gær stendur einkum tvennt upp úr: ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar og reiði í garð þeirra sem komu Íslendingum á kaldan klakann.

Fjármálaráðherra er rúinn öllu trausti. Ber þar hæst að hann svaf á fjármálavaktinni og lét fljóta sofandi að feigðarósi. Þá bætir margumtöluð embættisveiting á Norðausturlandi ekki úr skák.

Viðskiptaráðherra svaf einnig á vaktinni. Hið sama á við um ýmsa ráðherra aðra sem tóku jafnvel þátt í blekkingarleiknum.

Hver og einn um anna þveran og nú síðast iðnaðarráðherra hefur lýst því yfir að hann axli ábyrgð. En enginn hefur axlað ábyrgðina og sagt af sér.

Þá er seðlabankastjóri orðinn holdgervingur spillingarinnar í augum margra hvort sem það er á rökum reist eður ei. Flestir telja að hann sitji enn í embætti vegna veiklyndis forystumanna ríkisstjórnarinnar. Allt stuðlar þetta að aukinni sundrungu og andstyggð almennings.

Um þessar mundir er að verða deginum ljósara hvað hafst var að í bönkunum skömmu fyrir bankahrunið og sannar sögur um græðgi þeirra og ráðsmennsku í garð almennings allt til hinstu stundar reynast á rökum reistar. Enginn hefur verið sóttur til saka. Þótt því sé haldið fram að menn hafi ekki hagnast á þeirri fjármálaleikfimi sem iðkuð var dregur það ekki úr siðleysinu og glæpnum sem framinn var.

Heyrst hafa þær raddir að flest fari úr böndunum innan skamms ef ríkisstjórn og þing skyna ekki að Reykjavík brennur brátt eins og róm forðum. Hvorki piparúði né aðgerðarleysi og þumbaraháttur stjórnvalda geta komið í veg fyrir það.


Aðgengi allra verði tryggt

Það er löngu orðið tímabært að kosningakerfi landsins verði rafvædd. Styrmir Gunnarsson er einn þeirra sem hefur vakið athygli á kostum rafrænna kosninga og hvernig þær geti styrkt lýðræðið í sessi. Merkilegt má telja að sveitarfélög hafi ekki gefið kost á þessari aðferð.

Þegar frumvarp verður lagt fram um rafrænar kosningar ber brýna nauðsyn til að jafnaðarsé gætt svo að menn gjaldi hvorki búsetu né fötlunar.

Rafrænt kosningakerfi hefði til að mynda gert stjórnvöldum auðveldara um vik að kanna hug kjósenda til þeirra álitamála sem nú eru uppi í þjóðfélaginu svo að einna helst minnir á síðustu byltinguna í Úkraínu.


mbl.is Tilraun undirbúin með rafrænar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svikamyllan Kaupþing hið aldna

Orðrómurinn um sérstök lán handa vildarvinum gömlu bankanna á síðustu dögum góðærisins fór fjöllunum hærra í haust. Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, vék m.a. að þessu á útifundi á Austurvelli 8. nóvember síðastliðinn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband