Stjórnmál og samfélag | 26.1.2009 | 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnmál og samfélag | 26.1.2009 | 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnmál og samfélag | 26.1.2009 | 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá benda skoðanakannanir til að meirihluti Íslendinga sé andvígur inngöngu í Evrópusambandið. Á fundi Heimssýnar í dag kom m.a. fram að óeðlilegt væri að sækja um inngöngu í Evrópusambandið ef nokkunrn veginn væri vitað fyrirfram að Íslendingar myndu fella slíkt samkomulag. Þá var minnt á þá staðreynd að inngangan leysti ekki gjaldmiðilsvanda Íslendinga og gagnrýnd sú hótun Alþýðusambandsins að gera umsókn um inngöngu að skilyrði í næstu samningum.
Nú er kominn tími til að menn viðurkenni eðli sambandsins og kannist við þann árangur sem aðrar þjóðir hafa náð og brjóta í bága við hagsmuni okkar í auðlindamalum. Íslendingar hafa sjaldan riðið feitum hesti frá samningaviðræðum við aðrar þjóðir og vart mun Evrópusambandið verða þar undantekning.
![]() |
Samfylkingin hefur náð frumkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Staða Samfylkingarinnar hefur gerbreyst eftir afsögn Björgvins og staða Sjálfstæðisflokksins á hinn bóginn veikst. Ekki verður spáð í það hvort Geir fallist á svipaða tiltekt og Björgvin hratt af stað. Hitt er þó víst að háværar radir heyrast úr herbúðum beggja að forystumenn stjórnarinnar ættu einnig að víkja.
Nú ganga þau Geir og Ingibjörg gegnum mikla eldraun. Úrslitin ráðast af því hvort þau hyggist reyna að bjarga eigin skini eða hafi þjóðarheill í huga.
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undirritaður hefur fengið ítarlega skýrslu um það hvernig héraðshöfðingjar Framsóknarflokksins allt frá Skagafirði austur á hérað skipulögðu kosningu hins nýja formans. Þeim hafi litist vel málflutningur hans í ýmsum málum og telji sumir þeirra víst að Sigmundur verði S-hópnum ekki of leiðitamur.
Dæmin hafa sýnt svo að ekki er um að villast að valdamenn sem komust til áhrifa í skjóli öflugra einstaklinga fóru ekki ævinlega þær leiðir sem stuðningsmenn þeirra ætluðu. Gleggsta dæmið er Guðmundur biskup Arason.
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í þessum pistli bregst Birni bogalistin þegar hann ýjar að kröfum Samfylkingarinnar og telur að hún vilji leita skálkaskjóls í því að einhverjir ráðherrar flokksins, seðlabanki og forstjóri Fjármálaeftirlitsins verði látnir axla pokann sinn. Um Evrópumálin hirði ég ekki.
Ég hygg að þetta sé of einhliða ályktun. Sannleikurinn er sá að mikill hluti almennings telur að hreinsa hefði átt til fyrir löngu í báðum flokkum ríkisstjórnarinnar. Þannig er augljóst að viðskiptaráðherra er ekki sætt í stjórninni fremur en Árna Mathiesen. Árni er sekur um afglöp í embættisveitingum fyrir hönd Björns Bjarnasonar auk þess sem hann svaf á verðinum sem fjármálaráðherra. Þá ber hann eins og nær gervallur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ásamt Framsóknarflokknum ábyrgð á þeirri græðgisvæðingu sem tekin var upp hér á landi í lok síðustu aldar og hefur komið okkur á kaldan klakann.
Björgvin Sigurðsson svaf einnig á verðinum og hefði því hiklaust átt að víkja úr ríkisstjórn. Hið sama á við um þá Davíð Oddsson og Jónas Fr. Jónsson. Hvorugur þeirra getu setið í embættum sínum eftir það sem á undan er gengið.
Ég undrast að jafnheilsteypt fólk og þau Björn Bjarnason, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir Haarde hafi ekki komið auga á þá nauðsyn fyrir löngu að Íslenskir ráðherrar og embættismenn verði að axla ábyrgð þegar þeir gerast sekir um afglöp og vanrækslu í starfi. Í raun hefði Björn Bjarnason sem yfirmaður dóms- og kirkjumála og þar með gæslumaður almenns siðferðis í landinu átt að hafa forgöngu um siðvæðinguna innan Sjálfstæðisflokksins og draga Samfylkinguna með sér í því ferli.
Með því að halda hlífiskildi yfir vinum sínum hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar í raun dæmt sig úr leik og grafa nú óðum sína eigin gröf.
![]() |
Björn: Mikilvægt að búið sé að velja landsfundarfulltrúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 24.1.2009 | 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar tónhlaðan er tengd við tölvu, t.d. pc-vél, geta menn valið þær raddir sem fylgja Windows-stýrikerfinu. Ekki er vitað til þess að íslenska sé enn í boði.
Um leið og tónlist er halað niður á Nanóinn fylgja með textaskrár með lýsingum á því sem halað hefur veriðniður. Það er því ekki um eiginlegan skjálesara að ræða eins og í farsímum. Er þetta gert til þess að nýta betur minni Nanósins.
Eftir að talið hefur verið sett upp eru flestar valmyndir aðgengilegar. Leikir, klukka, dagatal o.fl. eru þó ekki þar á meðal.
Þá er skjárinn á Nano4 mun betri þeim sem eru sjóndaprir. Hægt er að velja mun meiri litaskerpu en áður.
Lyklaborð Nanósins er eins konar hjól sem notað er til þess að stilla styrkinn og fara á milli valmynda. Flestum gengur vel að átta sig á virkni þess á skömmum tíma.
Apple hefur einnig stórbætt aðgengið að Itunes-forritinu. Á það einkum við um notendur Apple-tölva. Enn vantar talsvert á að pc-umhverfið sé orðið aðgengilegt en unnið er að lausnum.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér nánar efni um Apple Nano 4 er bent á vefsíðuna
http://www.afb.org/aw/main.asp
Tónlist | 23.1.2009 | 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nú hefur Geir Haarde greinst með illkynja æxli í vélinda. Það er þyngra en tárum taki.
Ekki verður hér velt vöngum yfir áhrifum veikinda þessara forystumanna. Um leið og glaðst er yfir væntanlegum bata Ingibjargar Sólrúnar eru Geir Haarde fluttar kveðjur og einlægar óskir um bata.
Stjórnmál og samfélag | 23.1.2009 | 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 320104
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar