Textavarpið aðgengilegt hjá Vodafone um ljósleiðara

Vegna færslu um textavarp Vodafone hefur eftirfarandi athugasemd verið skrifuð í gestabók síðunnar:

"Textavarpið komið inn - líka fyrir norrænu stöðvarnar Sæll Arnþór Í ljósi þess að tímamörkin sem þú settir fyrir athugasemdir vegna blogg-færslu um Textavarp á sjónvarpsþjónstu gegnum ljósleiðara og ADSL bregð éég á það ráð skrifa þetta hér inn. Þú færir þetta kannski á réttan stað, ef þú getur. En alla vega, eftir að hafa fengið ábendingar um bloggfærslu Kristins Jóns var málið kannað, enda á Textavarpið að vera aðgengilegt þeim sem velja að fá sjónvarpsþjónustu um ljósleiðara og ADSL. Við þá athugunum kom í ljós bilun, sem olli því að útsendingar Textavarpsins á kerfinu lágu niðri. Það hefur nú verið lagfært og til viðbótar hefur textavarp stærstu sjónvarpsstöðvanna á Norðurlöndum einnig verið sett inn. Við skiljum vel mikilvægi þess að Textavarpið virki eins og fólk er vant. Að sama skapi vonum við, að notendur tæknilegum vandamálum skilning jafnvel þótt slíku fylgi óþægindi, sem við biðjumst að sjálfsögðu velvirðingar á. Kær kveðja, Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Vodafone"

Svona eiga sýslumenn að vera, eins og Skugga-Sveinn mælti hér um árið.


Athyglisverður leiðari DV

Ég hvet lesendur til að kynna sér leiðara DV sem kallast "Ísland á hvolfi."
Þar lýsir Jón Trausti Reynisson því hvernig hlutirnir snúast við gagnvart þeim sem minnst bera úr bítum á meðan aðrir bera meira úr bítum en nokkru sinni fyrr.

Sókn er besta vörnin

Flest bendir nú til að Rio Tinto ætli að hætta við að stækka álverið í Straumsvík og að ekkert verði úr álframkvæmdum við Húsavík. Þá er um að gera að leita á önnur mið og það hefðu menn átt að gera fyrir lifandi löngu.

Áhrif gagnrýni og lýðræðislegrar umræðu

Nú greina fjölmiðlar frá því að áform séu uppi um upptstokkun í ríkisstjórninni. Vissumlega eru þau dæmi um þau áhrif sem gagnrýnin umræða undanfarinna vikna hefur haft enda er það rétt að dropinn holi steininn. Það gera hins vegar ekki aðgerðir stjórnleysingja sem fáu vilja þyrma.

Það gleður mig hvað margir lesa færslurnar á þessari síðu og leggja orð í belg. Vonandi hjálpa þessir pistlar og athugasemdir við þá einhverjum til að móta sér skoðanir. Mér eru athugasemdirnar mikils virði enda sumar skrifaðar af mikilli skarpskyggni og þekkingu.


Efasemdir um Evrópusambandið

Mér barst merkilegt símtal áðan sunnan af Þýskalandi. Íslendingur nokkur, sem þar hefur búið um áratugaskeið, veltir nú alvarlega fyrir sér að beita sér fyrir því að haldin verði alþjóðleg ráðstefna um hugtakið "fullveldi" og þær afleiðingar, sem innganga í Evrópusambandið hefði fyrir Íslendinga. Telur hann slíkan vanda steðja að sambandinu um þessar mundir að Íslendingum sé betur borgið utan þess.


Björn Bjarnason nálgast Vinstri-græna

Ekki verður annað séð en þeir Steingrímur Sigfússon og Björn Bjarnason séu sammála um nauðsyn tvöfaldrar atkvæðagreiðslu um Evrópusambandsaðild, bæði um umsókn og síðan um aðild ef samningar nást.

Búast má við allsnörpum átökum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins þegar fjallað verður um Evrópumálin í janúar. Skrif Björns Bjarnasonar og ummæli Geirs Haarde sýna svo að ekki verður um villst að línur eru að skerpast millum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og birtist pirringurinn m.a. í hæpnum yfirlýsingum Ingibjargar Sólrúnar sem fer nú mikinn í Evrópusambandstrúboðinu.

Ingibjörg fer óvarlega um þessar mundir og stefnir hraðfara að pólitísku sjálfsmorði. Greinilegt er að þeir, sem hafa uppi efasemdir um Evrópusambandið, eiga vart heima í Samfylkingunni eins og sakir standa.


mbl.is Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarumsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp um þekkingarmiðstöð blindra, sjónskertra og daufblindra

Það er gleðilegt og góð frétt að nú sé loksins komið fram frumvarp um þessa þekkingarmiðstöð. Ég átti hlut að máli við að móta fyrstu tillögur um hana fyrir fjórum árum. En þetta lagafrumvarp vekur miklar vonir um bættan hag þessum hópi til handa.


Tilræði við menningarlegt sjálfstæði

Í kvöld áttaði ég mig á hvað aðför menntamálaráðherra að Ríkisútvarpinu er alvarleg. Á aðventunni hafa alls kyns auglýsingar tekið meiri tíma en gengur og gerist og á undan og eftir vinsælum sjónvarpsþáttum hefur verið fjöldi auglýsinga. Nú verður þetta takmarkað.

Á sama tíma virðist fjöldi auglýsinga óheftur í þeim tveimur sjónvarpsstöðvum sem einhverju máli skipta, Skjá einum og Stöð tvö.

Fáir hafa orðið til þess að agnúast út í rás 1, en margir amast við ás 2 og Ríkissjónvarpinu. Ætli sá verði endirinn að látið verði fjara svo undan ríkissjónvarpinu að það verði vart svipur hjá sjón?

Í stað þess að standa myndarlega að verki á nú að taka nefskattinn til almennra nota og skammta Ríkisútvarpinu skít úr hnefa, hið sama og Sjálfstæðisflokkurinn eða réttar sagt Framsóknarflokkurinn sem taglhnýtingur hans, gerði Framkvæmdasjóði fatlaðra, en upphaflega var erfðafjárskattur ætlaður þeim málaflokki. Þegar ég mætti á fund félagsmálanefndar Alþingis í desember árið 2000 eftir nokkurra ára hlé frá þessum vettvangi fann ég hvað tímarnir voru breyttir og að það andaði köldu í garð Öryrkjabandalagsins. Sagt var að nú heyrðu eyrnamerktir tekjustofnar sögunni til og lá við að ég sætti hálfgerðum svívirðingum þegar ég minnti einn nefndarmanninn á þjónustugjald aldraðra eins og mig minnir að gjaldið heiti.

Mér hefur verið núið því um nasir hér á þessum síðum að ég sitji heima í stofu og bloggi í stað þess að berja mann og annan. Árið 1986 voru samtök fatlaðra það virk að þeim tókst að hrinda alvarlegri atlögu ríkisins að framkvæmdasjóðnum og þá sátu forystumenn fatlaðra ekki aðgerðarlausir.

Nú verður enginn til þess að mótmæla harðlega aðförinni að Ríkisútvarpinu undir því yfirskyni að verið sé að rétta hlut einkarekinna kvikmyndaleiga á sjónvarpsmarkaðinum. Hið rétta er að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að sjá svo um að Ríkisútvarpið verði látið rotna innanfrá.


Ekki sitja allir við sama borð

Bloggfærsla Kristins Jóns Bjarnasonar vakti athygli mína en þar kemur fram að Vodafone bjóði ekki textavarp um ljósleiðarann. Það rýrir gildi sjónvarps fyrir heyrnarlausa.

Nefskatturinn fyrir Ríkisútvarpið nýtur mikillar andstöðu almennings þótt þetta sé í raun eina leiðin til þess að fjármagna myndarlegan rekstur útvarps og sjónvarps hér á landi. Það nær hins vegar ekki nokkurri átt að gjaldið renni í Ríkissjóðsem síðan skammti Ríkisútvarpinu skít úr hnefa með þjónustusamningi.

Sumir úr hópi blindra og heyrnarlausra hafa bent á að þessir hópar sitji ekki við sama borð og aðrir þegnar þessa lands. Heyrnarlaust fólk hlustar ekki á útvarp og blint fólk horfir ekki á sjónvarp. Ásrún Hauksdóttir, hjúkrunarkona, sem er hugmyndarík, stakk upp á því við undirritaðan að menntamálaráðherra og þingheimur allur léti þekja sjónvarpsskjái sína með svartri filmi til þess að athuga hver viðbrigðin yrðu. Ætli þingheimur kærði sig þá um að þurfa að greiða jafnháan nefskatt og þeir, sem njóta allra gæðanna?


Aðgát skal höfð

Þetta eru gleðifréttir. Eins og Jóhann Sigurjónsson gat um ber þó að fara að öllu með gát.

Erindi Görans Perssonar, fyrrum forsætis- og fjármálaráðherra Svía, hefur vakið mikla athygli og ekki síður einkasamræður sem ýmsir áttu við hann og fylginauta hans. Niðurstaða sumra þeirra virðist vera sú að ástandið hér á landi eigi eftir að versna og benda einnig til þess ummæli sem Per viðhafði í Speglinum. Einn viðmælandinn orðaði það svo að annaðhvort vissi ríkisstjórnin ekki hvert stefndi eða einungis hluti sannleikans væri sagður.

Það skal áréttað hér að undirritaður telur mikil mistök að mynda ekki þjóðstjórn eða skipa starfsstjórn til þess að fylgja eftir þeim framkvæmdum sem framundan eru því að vart verður komist hjá rækilegri uppstokkun í stjórn og stjórnarandstöðu.


mbl.is Jákvæðar vísbendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband