Þessar ofbeldisfullu aðgerðir hefðu væntanlega ekki orðið hefðu íslenskir ráðamenn sagt satt og brugðist við af ábyrgð. Ingibjörg Sólrún, sú mæta kona, þarf að hugsa áður en hún velur sér orð sem andsvar við mótmælum almennings.
Stjórnmál og samfélag | 31.12.2008 | 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á þessum bloggsíðum hefur undiritaður ekki skirrst við að vekja athygli á ýmsu sem betur mætti fara og hefur þannig skipað sér í hóp fjölda fólks sem vill stefna að betra Íslandi.
Að undanförnu hefur berlega komið í ljós hvernig samtrygging vináttu- og hagsmunatengsla hefur verið nýtt til þess að menn kæmu ár sinni fyrir borð þannig að árar annarra hafi um leið brotnað. Sjálfstæðisflokkurinn fékk síðast í gær ádrepu vegna stöðuveitingar sem vart á sér fordæmi á seinni árum. Sá ráðherra sem lét misnota sig í þessu tilviki sá ástæðu til þess að setja ofan í við þá sem veittu álitsgerðir um umsækjendur. Mér er spurn hvernig ráðherran hagar sér þegar gert verður upp við hann vegna afstöðu til fjölmargra mála og meðal annars þess að hann svaf á verðinum þegar varðmennirnir kölluðu - já, steinsvaf. Hverjum ætli hann núi því þá um nasir að þeir hefðu vart gert sér grein fyrir að hverju fór.
Eftir 17 ára setu í ríkisstjórn er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn gjörspilltur og Samfylkingin rær að því öllum árum að verða eins. Hugsanlegt er að landsfundur Sjálfstæðisflokksins taki einhverjar þær ákvarðanir sem undið geta ofan af spillingunni. Látum okkur vona að svo verði og fyllumst bjartsýni. En hvað um hinn stjórnarflokkinn?
Ég hef ákveðið að vera bjartsýnn um þessi áramót. Einhvern veginn fara nú að mér góðar fylgjur og bið ég þess að þær veiti landsmönnum lið.
Að svo mæltu þakka ég lesöndum þessara síðna gott samstarf og óska þeim og öðrum landsmönnum árs og friðar. Stjórnmálamönnum sendi ég sérstakar kveðjur og óskir um að þeir læri að skynja og skilja hvað ábyrgð er og hvað í henni felst.
Stjórnmál og samfélag | 31.12.2008 | 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég hef lengi haft gaman af að kaupa skartgripi handa konunni minni og hef iðulega gertþað þegarég hef haft efni og ástæður til. Fór ég því glaður inn á vefinn skart.is til þess að forvitnast um það sem þar er á boðstólnum.
Í fljótu bragði virtist mér vefurinn prýðilega hannaður. Uppsetningin er skipuleg og vöruflokkarnir vel aðgreindir.
En svo fór í verra. Ég fór í ýmsa vöruflokka og hugðist skoða þá. Byrjaði ég auðvitað á herraskartinu. Vér lágtekjuatvinnuleysingjar látum oss stundum dreyma. Viti menn. Enginn lýsandi alt-texti var við hlekkina. Einungis myndir. Vörukarfan virtist hins vegar aðgengileg svo að ég hefði hreinlega getað keypt mér alls kyns skart alveg blindandi og ekkert vitað hvaðan á mig stæði veðrið þegar ég fengi það afhent.
Ef hönnuðurinn hefði skoðað vefverslun Flugleiða (fyrirgefið, Iceland Air) hefði hann séð að á bak við hvern hlekk er lýsing. Þessar lýsingar gerðu það að verkum að ég hef iðulega skoðað vörulýsingar Sögubúðarinnar þegar ég hef átt leið á milli landa og ákveðið hvort ég kaupi eitt eða spyrjist fyrir um annað.
Hér með er þessari ábendingu komið á framfæri. Fallegar myndir af skartgripum ásamt góðum lýsingum selja betur en eingöngu myndir og eins og sakir standa er vefurinn skart.is ætlaður sumum en ekki öllum.
Vefurinn | 29.12.2008 | 23:20 (breytt 30.12.2008 kl. 22:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þeir drepa meira en þeir þurfa og spilla náttúrunni með öllum tiltækum ráðum.
Þeir sölsa undir sig bestu ræktarlöndin, hremma vatnsbólin, reisa múra til þess að loka fólk innan þeirra, svipta það lífsviðurværi sínu og verða þess valdandi að stöðugur ófriður ríkir í þessum heimshluta.
Mig hryllir við þegar ég heyri presta landsins vitna í borg Síons, Drottin Ísraels og því um líkt sem hefur valdið meiri tortímingu en nokkurt annað afl sem maðurinn hefur fundið upp.
Ef Guð er til og ég trúi því að hann sé til, er hann ekki hinn miskunnarlausi og grimmi guð sem Ísraelsmenn trúa á.
Engar líkur eru til að næsti Bandaríkjaforseti breyti um stefnu gagnvart Ísraelsríki, til þess er hann of háður bandarískum gyðingum. En nú væri rétmætt að öryggisráð SÞ samþykkti viðskiptabann á landið.P>
Stjórnmál og samfélag | 29.12.2008 | 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svo að vikið sé að Kaupþingi þarf engan að undra þótt eitthvað misjafnt hafi þar þrifist. Framganga fyrirtækisins gagnvart fyrirtækjum eins og Kaupfélagi Borgnesinga hér um árið var eingöngu forsmekkurinn af þeim yfirgangi sem stjórnendur þess sýndu. Þegar fólki virðist allt fært er oft stutt í fallið.
Hafi þessir einstaklingar ætlað að gera vel er rétt að hafa orð Lárusar Pálssonar í huga. Hann sagði: "Það sem gera skal vel fer oft verr en illa."
Velfarnaður getur aldrei byggst á græðgi.
![]() |
Gátu ekki tapað á samningunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 29.12.2008 | 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svo virðist sem slíkur einstaklingur sé á ferli hér á Seltjarnarnesi. Munurinn á honum og hinum dönsku er sá að hann vill helst láta hendur skipta þegar gangandi vegfarendur eiga í hlut. Í gær heyrði ég tvær sögur um hann.
Nú um hátíðarnar gengu miðaldra hjón sem búa á Seltjarnarnesi, sér til skemmtunar á göngustígnum. Þegar þau voru stödd skammt frá húsi björgunarsveitarinnar kom hjólandi á móti þeim úlpuklæddur maður. Hjónin héldu sig vinstra megin á stígnum enda er honum ekki skipt millum gangandi og hjólandi vegfarenda og ætlast er til að gangandi vegfarendur fari á móti umferðinni. Maðurinn virtist ætla að hjóla á þau en snarhemlaði og spurði þau hvort eitthvað væri að. Hélt hann síðan áfram. Konan svaraði að greinilega væri eitthvað að honum.
Hjólreiðakappinn sneri þá við, fleygði hjólinu fyrir framan þau og réðst að þeim. Lét hann dynja á þeim fúkyrðaflauminn og sýndi aðra, ógnandi tilburði.
Þessi saga hafði vart borist undirrituðum til eyrna en í heimsókn komu tvær konur. Barst þessi úrilli hjólreiðamaður í tal og taldi þá önnur konan sig hafa orðið fyrir svipaðri eða sams konar áreitni fyrir ári.
Það má merkilegt heita þegar yndisleg náttúra, gott veður og ómþýtt öldugjálfur valda þvílíku hugarangri að menn telji sig tilneydda að troða illsakar við samferðamenn sína.
Stjórnmál og samfélag | 29.12.2008 | 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í lokin er því haldið fram að Sigurjón Ólafsson vinni að þessum afskriftum í turni Reykjavíkurapóteks. Ætli það eigi að vera Sigurjón Árnason? Sagt er að hann sé iðinn við tætarana.
Í barnalegri einfeldni minni hélt ég að tætarar skiptu litlu máli þar sem rafrænar færslur eru til mörg ár aftur í tímann.
Þegar mér berast nánari skýringar á póstinum mun ég birta hann orðréttan. En í millitíðinni er ´skylt að árétta þá skoðun að þingmenn eigi að birta opinberlega allar upplýsingar um fjármál sín. Eins og málum er háttað um þessarmundir er slíkt bráðnauðsynlegt. Það er í raun forsenda þess að þeir geti gegnt skyldum sínum. Að öðrum kosti verður traust þeirra fáu sem treysta þeim minna en ekkert.
Stjórnmál og samfélag | 28.12.2008 | 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tölvur og tækni | 25.12.2008 | 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á meðan jólagjafirnar voru opnaðar varð mér hugsað til þess hvað mikið er til af skemmtilegum, talandi leikföngum. Mér til nokkurrar hremmingar tala þau flest ef ekki öll ensku.
Hvernig væri nú að leikfangainnflytjendur tækju sig nú til og útveguðu brúður, bíla, spiladósir o.s.frv. með íslensku tali og lögum.
Stjórnmál og samfélag | 25.12.2008 | 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öllum lesöndum þessarar bloggsíðu sendi ég einlægar óskir um gleðileg jól, gæsku og gróanda á nýju ári. Einkum óska ég ríkisstjórn landsins þess að hún læri hvað ábyrgð er og hvað þýðir að axla hana.
Stjórnmál og samfélag | 24.12.2008 | 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar