Ríghaldið í völd og áhrif

Í dag tekur nýr bæjarstjóri við á Seltjarnarnesi, Ásgerður Halldórsdóttir, 2. maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Ásgerður er gamalreyndur bæjarstjórnarmaður og hefur setið í fjölda nefnda á vegum Seltjarnarnesbæjar. Væntamargir mikils af stjórn hennar.

Heimildir eru fyrir því að nokkur urgur sé á meðal Sjálfstæðismanna í bænum vegna þess að fyrrum bæjarstjóri hyggist sitja áfram í bæjarstjórn og nefndum á vegum bæjarins þrátt fyrir að hann hverfi til starfa sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Er haft eftir áhrifamanni nokkrum innan flokksins að slíkt samrýmist ekki stöðu framkvæmdastjórans.


Breiðu bökin

Mikið mega öryrkjar og aldraðir borgarar þessa lands vera stoltir af því að þeim sé treyst til að taka þátt í endurreisn fjármálakerfisins. Mikið má Alþýðusambandið og önnur launþegasamtök skammast sín fyrir þessa endalausu kröfuhörku að ekki sé minnst á forystu samtaka fatlaðra og aldraðra.

Lifi ríkisstjórnin!


Fangelsisvandinn leystur

Nú þurfa stjórnvöld að láta hendur standa fram úr ermum áður en almenningur grípur til sinna ráða.

Gera á áunnin lífeyrisréttindi, sem sprottin eru af ofurlaunum útrásarvíkinga upptæk og nota féð sem fæst til þess að leysa hinn bráða vanda sem steðjar að glæpalýð þessa lands sem þarf á húsaskjóli að halda. Að öðrum kosti ganga 500 brotamenn lausir innan nokkurra ára að sögn afbrotafræðings.

Áður hefur á þessum síðum verið bent á sumarhús Sigurðar Einarssonar í Borgarfirði sem henta myndi einstaklega vel sem fyrirmyndar fangelsi á heims mælikvarða. Sigurður hlýtur að eiga einhvers staðar fólgið fé sem dugar til að breyta teikningum og ljúka við húsið.

Hið sama gildir væntanlega um Sigurjón Þ. Árnason. Lífeyrissjóði hans er betur varið til framkvæmda í almannaþágu e í brask í hans eigin þágu. Fleiri útrásarvíkingar verða ekki nefndir í bili.


skemmtileg Kvennakirkjumessa handa höfðingjasleikjum

Dagurinn var skemmtilegur. Við fórum í leiðangur með Hring okkar og á meðan Elín mátaði skó bjó Hringur til handa mér hringitóninn "Austrið er rautt" svo að nú er þessi gamli, kínverski ástarsöngur og lofsöngur um Mao kominn á ný í farsímann minn.

Í kvöld brugðum við Elín undir okkur Orminum bláa og hjóluðum austur að gömlu þvottalaugunum að hlýða messu hjá Kvennakirkjunni. Prédíkaði séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og var bæði skemmtileg og greind að vanda. Sagðist hún hafa komist að því að Íslendinga mesti vandi væri sá að þeir væru höfðingasleikjur.

Í ræðunni fjallaði hún einnig um flóttann frá Egyptalandi hér um árið þegar Móses leiddi Ísraelslýð um eyðimerkur Sínaí-skaga eða þar til þeir gátu hremmt Ísrael úr höndum þeirra sem ráðu því. Hún taldi að vísu að guð hefði gefið þeim landið en mér finnst ævinlega sem Gyðingar hafi stolið því.

Hún Auður rakti síðan skemmtilega hvernig skiptingin væri milli gamla testamentisins og hins nýja: Guð talaði fyrst við höfðingjana sem hefðu verið boðberar hans lýðnum. Síðar hefði guð gengið um á meðal manna sem Jesús og talað við almenning.

Enn hafði Auður Guð í kvenkyni. Þó fór hún með föðurvorið en ekki móðurvorið og var vissulega nokkur ósamkvæmni í því. Hún gleymdi samt ekki að ávarpa okkur hina fáu karlmenn sem hlýddum messunni.

Ég hef einu sinni áður hlýtt messu hjá Kvennakirkjunni. Niðurstað mín er sú að messur þeirra kvennanna vinni gegn ýmsum fordómum. Auður er hrífandi ræðumaður enda fékk hún gott hljóð.

Unnur vinkona okkar kom til móts við okkur í messuna og þar hittum við einnig Fanneyju Proppé sem bauð okkur þremur í kaffi og konfekt. Voru því andi og líkami vel nærðir eftir þennan dag.


Pukrið er hættulegt

Vafalaust er nú mörgum þannig farið að þeir sveiflast eins og pendúll í afstöðunni til Ice-save-samninganna. Þvílík ólíkindi hafa komið fram að undanförnu að niðurstaða fæst aldrei nema leynd verði aflétt. Því verður ekki trúað að ríkisstjórnin hyggist koma samningunum gegnum Alþingi án þess að öll gögn hafi verið lögð fram.

Á morgunvakt Ríkisútvarpsins var fjallað um Ice-save-málið í morgun. Voru athyglisverð sjónarmið Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingmanns Vinstri-grænna, þar sem hún benti á að kúgun skilaði aldrei árangri. Hógvær málflutningur hennar bar af. Mættu fleiri þingmenn temja sér þá yfirvegun sem hún býr yfir. Þá skilaði þinginu sjálfsagt hraðar í áttina að lausn þess vanda sem við er að stríða og enginn veit hvernig leysa skal.


Alið á misrétti í leiksýningu á sautjándanum

Ég hélt upp á sautjándann í Hafnarfirði í dag á Víðistaðatúni og var marg ágætra atriða á dagskrá. Þar á meðal voru atriði úr leiksýningu sem nefnist Litli prinsinn og Borgarbörn sýndu undir stjórn Erlu Rutar Harðardóttur, leikkonu.

Leikritið fjallar um framkomunámskeið sem vond stjúpa heldur fyrir ýmsar persónur úr heimsbókmenntunum eins og Mjallhvíti, Þyrnirós og fleiri hefðarkonur. Í tvígang var ýjað að því að einhver væri vart hæfur á námskeiðið vegna þess að hann eða hún væri þroskaheftur. "Er hún þroskaheft eða hvað?" minnir mig að spurt hafi verið.

Það er afleitt þegar stjórnendur leiksýninga sem ætlaðar eru almenningi bregðast ekki við og vindi ofan af fordómum í garð vissra hópa samfélagsins. Þroskaheftar konur geta engu síður talist til hefðarkvenna en aðrar konur sem telja sig ekki vera með skertan þroska. Hver ákveður mörkin?

Ég heyrði á tal áheyrenda í kringum mig sem hrósuðu Erlu Rut Harðardóttur fyrir leiksýninguna og rómuðu þau leikrit sem hún hefur sett á svið. Var m.a. talað um vel heppnaða sýningu um fíkniefnavandann. Þarna hefur þó Erlu Rut orðið alvarlega á í messunni.

Þegar rætt er um nýtt Ísland sem rísa á eftir bankahrunið er viðkvæðið jafnan að verja þurfi velferðarkerfið. Ég er stórlega farinn að efast um að það verði hægt - ekki vegna fjárskorts heldur vegna viðhorfa mikils hluta þjóðarinnar. Mér var tjáð um dagin að vissar opinberar stofnanir og félag nokkurt, sem telur sig vinna að velferðarmálum fatlaðs fólks, hafi margsinnis auglýst eftir fólki til þess að fara til náms í vissum greinum sem þarf að kenna hér á landi. Hæft fólk hefur vart fengist og því skortir enn fagfólk og verður svo þar til viðhorfin breytast. Fé skortir hins vegar ekki.

Fyrir nokkrum árum flúðu foreldrar blinds barns land vegna þess aðstöðuleysis sem ríkti hér á landi. Skyldi fara svo að skeytingarleysi og skortur fagfólks á málefnum fatlaðra verði til þess að því fylgi aðstöðuleysi sem hreki foreldra með fötluð börn úr landi? Hvenær skyldi fatlað fólk taka að flýja héðan til þess að losna við fordómana?

Þrátt fyrir allt tel ég að orðið hafi miklar framfarir í málefnum fatlaðs fólks hér á landi undanfarna áratugi. Enn er þó grunnt á fordómum og það er eins og einhver afturför hafi orðið í viðhorfum fólks. Jafnvel atvinnuleysið virðist ekki duga til að breyta því.


Jafnrétti allra

Forsætisráðherra flutti ávarp sitt af æðruleysi og yfirvegun. Jóhanna var ómyrk í máli um það sem gerðist síðastliðið haust.

Jóhanna brýndi þjóðina í jafnréttismálum karla og kvenna og tók það tvisvar sinnum fram að Íslendingar fengju notið jafnréttis án tillits til kynjanna. Ég bar þá von í brjósti, þegar þar var komið ræðunni, að hún minntist á fordóma gagnvart flestum hópum samfélagsins sem uppfylla ekki gildandi viðmið hverju sinni. Komið hefur í ljós í könnunum að undanförnu að í garð slíkra hópa ríkja meiri fordómar hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum. Ég ímyndaði mér að fyrrum ráðherra félagsmála hlyti að hafa þetta í huga í ávarpi sínu til þjóðarinnar á 17. júní.

Ríkisvaldið hefur gengið á undan með slæmum fordæmum og hagað auglýsingum starfa þannig að útilokað sé að fatlað fólk geti sótt um sum störfin, samanber Þekkingar- og þjónustumiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Það vantar einhvern veginn allan metnað og mikinn skilning á því hvernig mannauður fatlaðs fólks verði nýttur. Sjálfsagt verður ekki ráðin bót á þessu fyrr en hægt verður að sækja rétt fatlaðra með lögum og það gerist ekki fyrr en sáttmáli SÞ um málefni fatlaðra verður staðfestur.


mbl.is Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn sérstaki hljómur

Nú er leikin lúðrasveitahljómlist í Ríkisútvarpinu í tilefni sautjándans. Ég á eina skemmtilega minningu um íslenska lúðrasveit á erlendri grundu.

Árið 1974 kom ég því til leiðar að Blindrafélaginu var boðið að senda fulltrúa til vikudvalar í þorpinu Boltenhagen við Eystrasalt, en þar áttu austurþýsku blindrasamtökin skemmtilegt sumarsetur. Var þar iðulega efnt til samstarfsfunda Norðurlanda og Austur-Þýskalands, en Dr. Dr. Helmut Pilasch, formaður þeirra, var mikill áhugamaður um slíka samvinnu og eins framsýnn og nokkur kommúnisti undir járnhæl Sovétríkjanna gat leyft sér að vera.

Ég fór tvisvar á fund í Boltenhagen. Árið 1985 var ég þar með móður minni. Sunnudagsmorgun nokkurn, í 2. viku júlímánaðar vorum við á baðströndinni og í fjarska var einhver með lítið útvarpstæki. Var verið að útvarpa hátíðartónleikum á Eystrasaltsvikunni í Rostock. Allt í einu heyrði ég einhvern mars sem ég kannaðist við. En ég kannaðist við fleira og sagði við móður mína að nú mætti hundur í hausin á mér heita ef þetta væri ekki Hornaflokkur Kópavogs.

Tveimur dögum síðar fórum við með lest til Kaupmannahafnar og á Kastrup-flugvelli hittum við félaga úr Hornaflokki Kópavogs. Kom þá í ljós að þeir höfðu verið í beinni útsendingu um kl. 10:30 tveimur dögum fyrr.

Björn Guðjónsson, hinn mæti stjórnandi hornaflokksins, vildi að ég gæfi sér skýringu á því hvernig stæði á því að ég hefði þekkt hljóminn í hornaflokknum. Ég gat enga skýringu gefið aðra en þá að hann hefði sinn sérstaka hljóm.

Annars á ég ýmsar minningar um sautjándann. Eftirminnilegasta atriðið er Suðurlandsskjálftinn árið 2000. Ekki get ég sagt að það hafi beinlínis verið vel heppnað atriði hjá skaparanum. En þegar verið er að móta jafnstórt fyrirbæri og heilt land hlýtur eitthvað undan að láta.


Tekið í lurginn á formanni Framsóknarflokksins

Formaður Framsóknarflokksins hefur valdið mörgum vonbrigðum með framkomu sinni og málflutningi. Héldu sumir að hann yrði flokknum nýtt upphaf. Hann hjakkar hins vegar í sama gamla stjórnarandstöðufarinu. Þar hefur ekkert breyst. Lýðskrum og málþóf skal það vera.

Sjálfsagt hefur Ástu Ragnheiði hlaupið gamalt framsóknarblóð í kinnar og ákveðið að taka í lurginn á stráknum. Er nema von að forseta Alþingis blöskri misnotkun þessa liðar þingskapanna. Mál er að linni og á núverandi forseti þakkir skildar.


mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirgefum vorum skuldunautum um leið og siðblindir fá sýn

Í umrótinu sem orðið hefur hér á landi að undanförnu skolar ýmsu á land. Þar á meðal er sú staðreynd að örfáir einstaklingar gátu stofnað einkalífeyrissjóði vegna þess að ofurlaun þeirra voru slík að talið var réttmætt að þeir gætu sett á fót eigin fjármagns- og lánastofnanir.

Nú er það þekkt staðreynd að við, hinir almennu verkamenn í víngarði Drottins, eins og það er orðað í Biblíunni, höfum getað fengið lán hjá lífeyrissjóðunum sem við greiðum í. Þessi lán eru miðuð við greiðslugetu hvers og eins og eru með ákveðnum vöxtum - sum að vísu með breytilegum vöxtum.

Þeir, sem urðu svo ríkir að þeir gátu stofnað einkalífeyrissjóði með tugum eða hundruðum milljóna, jafnvel áður en menn urðu fertugir, hljóta nú að velta því fyrir sér hvort þjóðin sé reiðu búin að fyrirgefa þeim misgjörðir sínar. Þeir stofnuðu bankareikninga í Bretlandi og Hollandi, sem almenningur ber ábyrgð á og settu jafnvel heila banka og meira að segja heilt land á hausinn.

Rætt hefur verið um að frysta eignir þessara "auðmanna". Eru lífeyrisréttindin ekki þar á meðal? Þegar þetta er hugleitt virðist sem einkalán úr einkalífeyrissjóði, sem nú er fjallað um, verði því ógeðfeldara sem hugurinn hvarflar víðar. Af hverju þarf einkalífeyrisþeginn 70 milljóna kr lán til 20 ára með einni afborgun - lokagreiðslu? Bendir lánið ekki til þess að nú eigi að fjárfesta og braska í þeirri von að milljónirnar ávaxtist með betri hætti en innan einkalífeyrissjóðsins?

Fyrirgefning fæst einungis ef menn eru reiðubúnir að gjalda það sem þjóðarinnar er. Útrásarvíkingarnir eiga að réttu lagi enga lífeyrissjóði sem skipta milljónum eða milljörðum. Þjóðin á þessa sjóði og þarf á þeim að halda.

Hvenær skyldu siðblindir fá sýn?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband