Ætla þingmenn seint að vitkast?

Ýmsir myndu halda því fram að umræðan um Icesave-reikningana á Alþingi í dag væri með ólíkindum. Forystumenn stjórnarandstöðunnar koma fram í þessu máli eins og trúðar en ekki málsmetandi stjórnmálamenn. Lét formaður Sjálfstæðisflokksins jafnvel í veðri vaka að hann hefði ekki kynnt sér málið til fulls. Samt gengur hann um gasprandi og bendir ekki á neinar lausnir.

Sennilega er rétt hjá Ötmundi Jónassyni að stjórnarandstaðan leiti nú allra leiða til að fella ríkisstjórnina með því að fella frumvarp hennar um þessa nauðarsamninga og leiki síðan þann leik að semja á svipuðum nótum. Formaður Sjálfstæðisflokksins reynir með þessu móti að draga athyglina frá þeim vanda sem forysta flokksins á við að stríða vegna 900 milljóna láns sem enginn er ábyrgur fyrir en einhverjir hafa haft nokkrar tekjur af. Væri ekki ráð að formaðurinn gerði tvennt: réðist gegn spillingunni í eigin flokki og kæmi með nothæfar tillögur í Icesave-málinu?


Ýmis leyndarmál Vestfjarða

Við hjónin höfum að undanförnu notið þess að ferðast um Vestfirði og skoða okkur þar um. Við höfum haft aðsetur í Súðavík og farið þaðan í leiðangra um svæðið. Unnur Alfreðsdóttir, vinkona okkar, var með okkur um skeið.

Í Súðavík er Raggagarður, unaðsreitur, hressingar- og skemmtigarður handa börnum og fullorðnum. Vilborg Arnarsdóttir hefur beitt sér fyrir gerð garðsins og hefur veg og vanda af stjórn garðsins ásamt ýmsum valinkunnum heiðursmönnum. Raggagarður er gott dæmi um það hverju eljusemi og áhugi geta áorkað. Garðurinn er gersemi á Vestfjörðum og í raun þjóðargarður sem vert er að veita athygli.

Þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér sögu Raggagarðs, er bent á heimasíðuna www.raggagardur.is

Í Skötufirði hefur verið unnið að því að gera upp gamlan bæ, Litlabæ, sem hlaðinn er að mestu úr flögugrjóti, en algengt var þar um slóðir að bæir væru hlaðnir að mestu úr slíku grjóti. Þessi bær er nú einn eftir sem dæmi um þessa fornu byggingarlist. Ferðamönnum er eindregið ráðlagt að fara að Litlabæ og skoða þessar merku hleðslur.

Greinilegt er að Vestfirðir eru í sókn sem ferðamannasvæði. Þangað er margt að sækja sem fengur er að.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband