Vinnumálastofnun virðir ekki aðgengisstefnu ríkisstjórnarinnar að upplýsingasamfélaginu

Í dag ritaði ég forstjóra Vinnumálstofnunar, Gissuri Péturssyni, bréf um aðgengi að upplýsingum á vegum stofnunarinnar. Sumt á vef hennar er allsæmilegt en mjög skortir á um aðgengi að eyðublöðum o.fl.

Komdu sæll, Gissur.

Ég skrifaði þér í janúar 2007 vegna aðgengis að gögnum Vinnumálastofnunar á vefnum. Í bréfi mínu kemur m.a. fram að eyðublöð, sem birt eru á vefnum, eru óaðgengileg þeim sem þurfa að nýta sér skjálesara vegna sjónskerðingar.

Þú svaraðir skjótt og vel og tjáðir mér að unnið væri að úrbótum í þessum efnum. Síðan virðist fátt hafa gerst.

Eyðublöðin eru enn á því sniði að skjálesarar geta ekki eða illa lesið þau. Sjá m.a. umræðu á http://arnthorhelgason.blog.is þar sem tveir forritarar tjá sig um eyðublöðin.

Þá er útfyllingareyðublaðið, "Starfsumsókn" sem er á vef stofnunarinnar og ætlað er til þess að menn geti skráð sig í gagnagrunn hennar, einnig óaðgengilegt að nokkru leyti. Þar vantar raunar aðeins herslumuninn.

Á heimasíðunni er stérstök stilling fyrir sjónskerta. Ég skil ekki til hvers sú stilling er höfð á síðunni þegar efni, sem nauðsynlegt er að fylla út, er ekki aðgengilegt.

Ýmsir einstaklingar standa höllum fæti á vinnumarkaði vegna sjónskerðingar sinnar. Ríkisstjórn Íslands hefur sett fram skýra stefnu í aðgengi að upplýsingasamfélaginu sem ætla má að gildi fyrir allar ríkisstofnanir, sjá m.a. http://ut.is, en þar er m.a. krækjan "Aðgengi allra að vefnum" auk umfjöllunar um hönnun opinberra vefja. Vinnumálastofnun hefur ekki tekist að öllu leyti að framfylgja þeirri stefnu.

Hvers kyns tölvuvinnsla er eitt þeirra sviða sem blint fólk hefur haslað sér völl á erlendis en ekki nema að litlu leyti hérlendis. Þó hafa nokkrir einstaklingar nýtt sér þessa tækni með góðum árangri. Það skýtur skökku við, þegar þessir sömu einstaklingar segja atvinnuráðgjöfum stofnunarinnar að þeir geti nýtt sér tölvur til allrar almennrar vinnslu, þegar kemur í ljós að þeir geta ekki einu sinni fyllt út eyðublöð stofnunarinnar vegna þess að þau eru ranglega hönnuð. Hverju eiga þá atvinnuráðgjafarnir að trúa? Þarna veldur hönnunin fötlun sem kæmi ekki að sök ef umhverfið væri rétilega hannað.

Ég hef unnið að aðgengismálum fatlaðra í rúma tvo áratugi og mikil vakning hefur orðið að undanförnu hér á landi einkum hvað varðar vefaðgengi.

Hvernig stendur á því að Vinnumálastofnun daufheyrist við þeim ábendingum sem lagðar hafa verið fram?

Hefur verið gerð áætlun umhvenær þessum málum verði kippt í liðinn?

Tryggingastofnun ríkisins hefur nú bætt úr aðgengi að eyðublöðum á heimasíðu sinni svo að til fyrirmyndar er. Hið sama má segja um Ríkiskattstjóra, stjórnarráðið og ýmsar opinberar stofnanir.

Ég leyfi mér að birta þetta bréf á bloggsíðu minni og vænti svars frá þér hið fyrsta.

Virðingarfyllst,

Arnþór Helgason ***************************************************** Arnþór Helgason, Tjarnarbóli 14, 170 Seltjarnarnesi. Símar: 5611703, 8973766 Netfang: arnthor.helgason@simnet.is Pistlar: http://arnthor.helgason.blog.is


Ekki er allt sem sýnist

Vissulega ber að fagna því framtaki Blindrabókasafns Íslands að láta þýða þetta forrit á íslensku.

Í fréttinni er minnst á talgervilinn Röggu. Hann er enn ófullgerður. Röddin er brostin, hann kveður ekki rétt að einstökum bókstöfum og fjölmörg tákn hafa ekki verið skilgreind. Talgervillinn var ALDREI prófaður af notendum á meðan á þróun hans stóð.

Menntamálaráðuneytið hefði átt að sjá til þess að Ragga yrði betrumbætt um leið og ákveðið var að látahana fylgja lestrarforritinu. Hætt er við að flestir notendur gefist upp á að hlusta á hana vegna þess hvað röddin er óþjál. Það er enn hægt að laga.


mbl.is Bót fyrir blinda og sjónskerta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur kjánaskapur fjármálaráðherra

Nú hefur fjármálaráðherra stefnt ljósmæðrum fyrir félagsdóm vegna fjöldauppsagna. Ætlar þetta mál engan enda að taka?

Nú þegar kannanir sýna að launamunur karla og kvenna fer vaxandi ber brýna nauðsyn til að taka á þessum vanda. Það gerir fjármálaráðherra ekki með því að stefna ljósmæðrum fyrir dóm.

Dagur er upp kominn,

dynja hanafjaðrar.

Frekur er hver til fjörsins,

fjármálaráðherra.

Verður þú sjálfur barinn

ef berðu annan.


Bloggfærslur 12. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband