Uppsagnir á Stöð tvö

Í morgun bárust fréttir af því að Sigmundi Erni Rúnarssyni, fréttastjóra Stöðvar tvö og eiginkonu hans hefði verið sagt upp störfum. Þá hefur þáttagerðarmönnum einnig verið sagt upp störfum.

Sigmundur Ernir lætur að því liggja að reynslulitlir stjórnendur, sem hafi verið ráðnir að stöðinni, þoli ekki fólk með reynslu í kringum sig.

Þetta er leitt. Og það er leitt að bjóða þau hjónin velkomin í hóp reyndra stjórnenda sem reynslulitlir forráðamenn þola ekki.

Minnimáttarkenndin er mikils megnug en hefnir sín fyrr eða síðar. Þeim hjónum og öðrum, sem hafa orðið að sæta þessum örlögum, er óskað velfarnaðar.


Hugmyndir um Þingrof

Nú fer sá orðrómur fjöllunum hærra að Sjálfstæðismenn velti því nú alvarlega fyrir sér að Geir rjúfi þing og sitji stjórnin fram að kosningum. Vafalaust er skýringin sú að engum öðrum en ríkisstjórnarflokkunum sé treystandi til að stýra þjóðarfleyinu framhjá þeim boðum sem framundan eru. Samfylkingin er sögð tvístígandi í málinu.


Ofbeldismenn hafi hemil á sér

Ég hef fylgst af áhuga með mótmælum undanfarinna daga. Sjálfur hef ég því miður ekki átt þess kost að fara niður á Austurvöll. Greinilegt er að mótmælin eru að bera árangur. Nokkrir skemmdarvargar verða ævinlega til að kasta rýrð á friðsama mótmælendur. Það nær ekki nokkurri átt að hvetja til þess að lögreglumenn eða starfsmenn ríkisins verði fyrir einelti eða áreitni á heimilum sínum vegna hvatningar ofbeldismanna. Verði hið nýja Ísland lögregluríki er það þessum skemmdarvörgum að kenna.

Áfram með friðsöm mótmæli! Látum í okkur heyra og knýjum fram breytingar með rökum en ekki ofbeldi!


mbl.is Nafnbirtingin grafalvarlegt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignast útlendingar Árvakur?

Nú benda líkur til að erlendirfjárfestar eignist Árvakur. Vafalítið hafa ýmsir áhyggjur af þessu. Á hitt ber þó að líta að hugsanlegt er að nauðsynlegt fjármagn fáist með þessu móti til þess að styrkja innviði fyrirtækisins og efla vanburðugan banka. Hvernig sem allt veltist vona ég að ekki verði vegið að grunnstoðum íslenskrar fjölmiðlunar. Á umbrotatímum sem þessum þurfum við á sterkum fjölmiðlum að halda og það er vel að einhverjir trúi á fjárfestingar hérlendis.


Bloggfærslur 22. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband