Blogghlé

Ég hef ákveðið að taka mér hlé frá bloggskrifum um stundarsakir. Blogginu verður læst með aðgangsorði frá kl. 17 í dag. Það ræðst væntanlega um mánaðamótin hvort framhald verði á skrifum á þessum vettvangi.

Lengi lifi Jóhanna!

Loksins þegar Ingibjörg Sólrún tók af skarið sýndi hún hversu snjöll hún er. Jóhanna Sigurðardóttir er ímynd heiðarleika og trausts á meðal fólks í öllum flokkum. Nú er spurn hvað Geir gerir og hvort Steingrímur Sigfússon fremur pólitískt sjálfsmorð með því að hafna tilboðinu.


Tekist á um stjórnarsamstarfið

Morgunblaðið greinir frá því að Samfylkingin vilji fá forsætisráðuneytið. Það hlýtur að þýða að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir Haarde hverfi bæði úr ríkisstjórn. Hvorugt þeirra bar gæfu til að hreinsa til að kröfu almennings.


Bloggfærslur 26. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband