Alvarlegur siðferðisbrestur - hvað er til ráða?

Sá orðrómur hefur lengi verið á kreiki að aflandsviðskipti með krónuna eins og þau, sem lýst er í grein Morgunblaðsins í dag, hafi verið stunduð. Hagnast innflytjendur m.a. á lágu gengi krónunnar. Þannig fást fleiri krónur fyrir útflutninginn en gjaldeyrir, sem nýta þarf til samneyslunnar, hverfur. Íslendingar verða því í enn verri stöðu til þess að eiga millilandaviðskipti og í raun skaðar þetta viðskiptajöfnuðinn.

Ágúst Valfells segir í viðtali við Morgunblaðið að með hertum reglum Seðlabankans séu Íslendingar að grafa sér enn dýpri haftagröf. Athugasemdir hans valda því að almennir lesendur hljóta að velta því fyrir sér hvers vegna mál eins og þetta séu ekki brotin til mergjar í stað þess að birta stuttorða yfirlýsingu sérfræðings í fjármálum um neikvæð áhrif aðgerða stjórnvalda.

Almenningur ætlast í æ ríkara mæli en áður til þess að lagðir séu fram kostir og gallar þeirra ráðstafana sem gripið er til svo að hægt verði að verja samneysluna og bæta hag þjóðarbúsins. Í raun eru viðskipti eins og þau, sem fjallað er um í fréttinni og grein Morgunblaðsins, ekkert annað en undanskot og þjófnaður.

Eins brauð er annars dauði.


mbl.is Aflandskrónur ónothæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband