Alvarlegur siðferðisbrestur - hvað er til ráða?

Sá orðrómur hefur lengi verið á kreiki að aflandsviðskipti með krónuna eins og þau, sem lýst er í grein Morgunblaðsins í dag, hafi verið stunduð. Hagnast innflytjendur m.a. á lágu gengi krónunnar. Þannig fást fleiri krónur fyrir útflutninginn en gjaldeyrir, sem nýta þarf til samneyslunnar, hverfur. Íslendingar verða því í enn verri stöðu til þess að eiga millilandaviðskipti og í raun skaðar þetta viðskiptajöfnuðinn.

Ágúst Valfells segir í viðtali við Morgunblaðið að með hertum reglum Seðlabankans séu Íslendingar að grafa sér enn dýpri haftagröf. Athugasemdir hans valda því að almennir lesendur hljóta að velta því fyrir sér hvers vegna mál eins og þetta séu ekki brotin til mergjar í stað þess að birta stuttorða yfirlýsingu sérfræðings í fjármálum um neikvæð áhrif aðgerða stjórnvalda.

Almenningur ætlast í æ ríkara mæli en áður til þess að lagðir séu fram kostir og gallar þeirra ráðstafana sem gripið er til svo að hægt verði að verja samneysluna og bæta hag þjóðarbúsins. Í raun eru viðskipti eins og þau, sem fjallað er um í fréttinni og grein Morgunblaðsins, ekkert annað en undanskot og þjófnaður.

Eins brauð er annars dauði.


mbl.is Aflandskrónur ónothæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Eina lausnin sem ég sé er að gefa gjaldeyrisviðskipti frjáls aftur þannig að allir sitji við sama borð.

Hörður Þórðarson, 17.11.2009 kl. 04:12

2 identicon

Skylda útflytjendur til að koma með gjaldeyrinn heim.

Láta þá afla sér skilríkja fyrir útflutningnum og svo má reikna út hvað þeir munu fá fyrir hvern farm.

Hér eftir stríð og lengi þar á eftir, þurfti að sækja um að fá vinnutæki eins og vörubíla keyptan erlendis frá, og þótti slæmt. en tímarnir voru slæmir, vegna nýlokinna stríðsátaka. og eins er nú, við erum eins og vígvöllur, Íslenska þjóðin, sem bæði íslenska ríkisstjórnin og nokkur Evrópuríki, fara ránshendi yfir. bæði seka og saklausa borgara. 

Er það ekki þannig í stríðsátökum að saklausir verða oftar fyrir verstu áföllunum?

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband