Vaka - suðupottur sukksins?

Svo spurði Íslendingur, sem býr ekki hér á landi, þegar við ræddumst við í gærkvöld. Benti hann mér m.a. á að augljós vina- og kunningjatengsl væru á milli helstu forkólfa útrásarinnar og fyrrum forstöðumanns fjármálaeftirlitsins, en þeir voru áður í stjórn Vöku eða fulltrúar félagsins í háskólaráði.

Forvitnum lesendum er bent á vefinn http://www.vaka.hi.is en þar er að fina upplýsingar um stjórnir félagsins.

Sá grunur læðist að mönnum við könnun þessara gagna að ´Fjármálaeftirlitið undir stjórn fyrrum forstöðumanns hefði átt óhægt með að taka á ýnsum þáttum bankaútþennslunnar vegna vináttutengsla við þá sem fóru þar fremstir í flokki.


Barnatími sjónvarpsins

Í morgun vaknaði Birgir Þór kl. hálf átta og eftir að afi fór fram varð hann friðlaus.

Snáðinn læddist fram í eldhús og sagðist ekki geta sofið lengur svo að afi stakk upp á að þeir fylgdust með barnatíma ríkissjónvarpsins.

Á dagskrá voru bandarískar barnamyndir að ég hygg og hafði verið sett við þær íslenskt tal. Til mikillar fyrirmyndar er að sjónvarpið skuli láta þýða efni sem ætlað er börnum, enda hafa komið fram á undanförnum árum ýmsar snilldarvel gerðar þýðingar.

Í morgun fannst mér talsvert skorta á að vandað hefði verið til þýðinganna. Guðfinna rúnarsdóttir virðist hafa þýtt flestar myndirnar sem sýndar voru í morgun. Raddbeiting leikaranna var með ágætum en málfarið ekki upp á marga fiska.

Búinn var til morgunverður fyrir fólk en ekki handa því (enska forsetningin for), börn (pöddur eða eitthvað annað) léku í stað þess að leika sér, upphrópanir eins og "Ó nei" voru algengar og margt bar þess keim að ensk tunga væri móðurmál þess er samdi textann. Þýðingarnar voru yfirleitt hráar þótt nokkrum sinnum brygði til hins betra.

Ýmislegt fleira gæti ég tínt til. Textinn var þó að flestu leyti fremur lipurlega saman settur. Þýðandinn ættii að vanda betur verk sitt og láta einhvern lesa yfir textann áður en hann er hljóðsettur handa íslenskum börnum.

Barnatímar sjónvarpsins eru vinsælir. Því er hætt við að málfar þeirra móti málþróun barnanna. Ábyrgur ríkisfjölmiðill (ef hann er þá til) á skilyrðislaust að gera kröfur til þess að dagskrárgerðarfólk vandi málfar sitt í stað þess að kasta til höndunum. Er þetta einkar mikilvægt þegar efni er matreitt handa börnum.


Ríkisútvarpið brýtur bann gegn áfengisauglýsingum

Í morgun kveikti ég á útvarpinu til þess að hlusta á fréttir kl. 8. Á undan fréttunum voru auglýsingar. Í einni auglýsingunni var fólk hvatt til þess að fara í Brugghús Mjaðar í Stykkishólmi og kynna sér framleiðslu fyrirtækisins.

Hætt er við að þessi auglýsing stríði gegn banni á áfengisauglýsingum í fjölmiðlum.


Bloggfærslur 3. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband