Ofbeldi býður hættunni heim

Fámenn samtök, sem hyggjast bjarga Íslandi, hafa löngu gengið sér til húðar. Þessi fámenni hópur þekkir ekkert annað en ofbeldi, lögleysu, meiðingar og skrýlslæti.

Agaleysið í íslensku þjóðfélagi hefur verið þannig að slíkum skrýlmennum þykir vegsauki af því að berja lögreglumenn í höfuðið við skyldustörf sín, sletta skyri og málningu á hvað sem fyrir verður og fremja önnur skemmdarverk.

Það er leitt að friðarsinnar og náttúruverndarmenn svo sem Vinir Tíbets og Saving Iceland skuli vera skálkaskjól fyrir ofbeldisfull lítilmenni sem ástunda slíkar aðferðir. Þannig afla þaur sér fyrirlitningar meginþorra þjóðarinnar og vinna gegn upphaflegum markmiðum, nema þaur sigli undir fölsku flaggi og tilgangurinn sé að valda sem mestri eyðileggingu.


mbl.is Mótmæli við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband