Forsetinn samþykki lög um ríkisábyrgð Við undirrituð skorum á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að skrifa undir lög um ríkisábyrgð vegna Icesave. Við teljum að afleiðingar þess að hafna lögunum muni vera verri fyrir þjóðina en hljóti þau samþykkt, sérstaklega hvað varðar samskipti við önnur ríki. Af tvennu illu teljum við samþykkt laganna sem sagt skárri kostinn. Við viljum einnig benda á þá staðreynd að utanríkisstefna Íslands hefur frá stofnun lýðveldisins verið til háborinnar skammar. Ísland hefur, á alþjóðavettvangi, hegðað sér eins og lítill frekur krakki sem suðar og suðar þangað til hann fær nákvæmlega það sem hann vill, ónæmur fyrir sjónarmiðum annarra. Vegna taktískrar staðsetningar okkar milli Nató og Sovétríkjanna komumst við upp með þetta þar til nýlega. Nú, þegar Ísland á fáa ef einhverja vini eftir teljum við kominn tíma til að breyta þessari stefnu til hins betra og taka ábyrgð á gjörðum okkar. _________________________________________________ ________________ Að gefnu tilefni: Þeim sem koma ekki fram undir fullu nafni sem og fölsunum verður eytt af listanum. Þess ber einnig að geta að aðeins er hægt að skrifa undir einu sinni á dag frá hverri IPtölu. Viðbót: Þetta var greinilega ekki nógu skýrt hjá mér, því enn eru margir sem kjósa nafnleynd og birtast því sem "Anonymous" á listanum. Sem stjórnandi undirskriftalistans sé ég nafnið EKKI öðruvísi, það er ein af fjölmörgum takmörkunum sem þessi vefsíða hefur. Ég get heldur ekki aftengt nafnleyndarmöguleikann, svo ég hef því neyðst til að eyða þeim öllum, ásamt öllum Andrésum Öndum og slíku, sem og þeim sem eru með augljóslega vitlausar kennitölur. Ef þú af-hakar við reitinn "Show my name in the online signature list" þá verður undirskriftinni þinni því miður eytt. No virus found in this incoming message. Checked by AVG - www.avg.com Version: 9.0.725 / Virus Database: 270.14.124/2598 - Release Date: 01/03/10 09:41:00
Stjórnmál og samfélag | 3.1.2010 | 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Opið bréf til Önnu í Hollandi.
Kæra Anna.
Ég skrifa þér þessar línur til að biðja þig að hafa þjóðina mína afsakaða, í öllu falli þann hluta hennar sem kemur fram í fjölmiðlum fyrir hana. Hefði ég vitað að þú ætlaðir að leggja þessa peninga þína inn í þennan banka og hefði ég vitað hverjir áttu hann og hvernig hann var kynntur hefði ég örugglega varað þig við, fyrirgefðu vina mín. Ég var búinn að hlusta á sölumenn þessarar tegundar þjónustu, halda tölu yfir pólsku og thailensku verkafólki hér, og varð flökurt.
Ég veit nú, að þetta var útibú frá bankanum sem líka hafði útibú til að geyma lítilræði af peningum sem ég "átti". Mér hefði funndist að fyrst hefði átt að skila þér þínum peningum, mér ef eitthvað var eftir. Einfaldlega vegna þess að hér voru peningarnir í notkun, byggt fyrir þá tónlistarhús m.a..
Mér þykir það leitt vina mín hvað margt af ráðaandi fólki á Íslandi er þeirrar skoðunar að það sé annarra að standa þér skil. Það mundi að hluta til sama fólkið og barg innistæðum sínum með neyðarlögunum, innistæðum sem sumar voru þarna vegna sölu þess á fjölskyldufyrirtækjum til eigenda bankanna.
En mig langar til að minna þig, sem ert fróð í heimspólitíkinni, á að í þessu moldviðri er ekki allt sem sýnist. Við sitjum uppi með stjórn sem ekki hentar því kerfi sem heiminum er stjórnað eftir, og við eigum eftir að blæða fyrir þann herkostnað sem lagður er í, til að koma henni frá, ofan á allt hitt. Í þessu ljósi má skoða sjálfshjálparhópinn með enska heitið. Við sem lásum "Skuldagildru" bandaríska lögfræðingsins og blaðamannsins Cheryl Payer eigum að þekkja þetta.
Mér líður eins og ég sé þjófsnautur í þessu máli og það án þess að fá þar nokkru breytt, að vísu með líkum hætti og verið hefur gagnvart þriðja-heiminum á liðnum árum.
Það þarf svo ekki tiltakanlega frjótt ímyndunarafl til að gera sér í hugarlund orðræðuna hér ef þessum hlutum hefði verið öfugt farið, ég hefði lánað þér peninga til að byggja í Hollandi.
En endilega, komdu í heimsókn meðan gengið er svona og ég skal benda þér á kennileiti þess sem nú hýsir fyrrum sparnaðinn þinn, og skilaðu þökkum mínum til þíns fólks að hlaupa undir bagga og borga þér þetta út, eins þótt ég viti vel að þar hugsuðu þeir nú fyrst og síðast um eigið skinn.
Kveðja, Hrafn.
Stjórnmál og samfélag | 3.1.2010 | 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 3. janúar 2010
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar