Skorað á forseta Íslands að undirrita Icesave-lögin

http://www.ipetitions.com/petition/ja-vid-icesave/

Forsetinn samþykki lög um ríkisábyrgð Við undirrituð skorum á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að skrifa undir lög um ríkisábyrgð vegna Icesave. Við teljum að afleiðingar þess að hafna lögunum muni vera verri fyrir þjóðina en hljóti þau samþykkt, sérstaklega hvað varðar samskipti við önnur ríki. Af tvennu illu teljum við samþykkt laganna sem sagt skárri kostinn. Við viljum einnig benda á þá staðreynd að utanríkisstefna Íslands hefur frá stofnun lýðveldisins verið til háborinnar skammar. Ísland hefur, á alþjóðavettvangi, hegðað sér eins og lítill frekur krakki sem suðar og suðar þangað til hann fær nákvæmlega það sem hann vill, ónæmur fyrir sjónarmiðum annarra. Vegna taktískrar staðsetningar okkar milli Nató og Sovétríkjanna komumst við upp með þetta þar til nýlega. Nú, þegar Ísland á fáa ef einhverja vini eftir teljum við kominn tíma til að breyta þessari stefnu til hins betra og taka ábyrgð á gjörðum okkar. _________________________________________________ ________________ Að gefnu tilefni: Þeim sem koma ekki fram undir fullu nafni sem og fölsunum verður eytt af listanum. Þess ber einnig að geta að aðeins er hægt að skrifa undir einu sinni á dag frá hverri IPtölu. Viðbót: Þetta var greinilega ekki nógu skýrt hjá mér, því enn eru margir sem kjósa nafnleynd og birtast því sem "Anonymous" á listanum. Sem stjórnandi undirskriftalistans sé ég nafnið EKKI öðruvísi, það er ein af fjölmörgum takmörkunum sem þessi vefsíða hefur. Ég get heldur ekki aftengt nafnleyndarmöguleikann, svo ég hef því neyðst til að eyða þeim öllum, ásamt öllum Andrésum Öndum og slíku, sem og þeim sem eru með augljóslega vitlausar kennitölur. Ef þú af-hakar við reitinn "Show my name in the online signature list" þá verður undirskriftinni þinni því miður eytt. No virus found in this incoming message. Checked by AVG - www.avg.com Version: 9.0.725 / Virus Database: 270.14.124/2598 - Release Date: 01/03/10 09:41:00


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Eignumst við vini með því að hlýta afarkostum,ég við segjum nei. Þá fyrst verðum við virt,er við sýnum að við stöndum á okkar rétti. Í þessu sambandi vil ég minna á hvað Ólafur Ragnar stóð sig frábærlega í Þorskastríðinu,talandi einn máli Íslands,með hóp af breskum blaðamönnum sem dúndruðu á hann spurningum.    Ógleymandi.

Helga Kristjánsdóttir, 4.1.2010 kl. 03:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband