Glæpsamlegt athæfi

Á vef mbl.is í gær var vitnað til fréttar á heimasíðu Spalar. Þar var greint frá glæfralegum akstri drukkins ökumanns á jeppa, sem braut niður grindverk við Hvalfjarðargöngin og hefði getað valdið stórslysi. Var sá hinn sami heppinn að drepa hvorki sjálfan sig né ðra.

Áður hefur verið vikið að því á þessum síðum að Íslendingar skilji fátt annað en ströng viðurlög. Atburðir sem orðið hafa í umferðinni að undanförnu sýna og sanna að til einhverra ráða verður að grípa gagnvart þeim sem stofna lífi og limum í hættu með gálausum akstri vegna neyslu áfengis og eiturlyfja, en hvorugt fer saman ásamt akstri. Ég hef verið fylgjandi háum sektum og jafnvel því að bifreiðar verði gerðar upptækar og fólk svipt ökuréttindum a.m.k. jafnlengi og þeir sem eru dæmdir í ævilangt fangelsi. Þetta kunna að vera hörð sjónarmið en aðrar leiðir eru færar.

Í raun þarf að stofna til endurhæfingar einstaklinga sem hegða sér með svipuðum hætti og maðurinn í Hvalfjarðargöngunum. Yrði þátttakendum í slíkri endurhæfingu gert að greiða allan kostnað sjálfir og kæmi hann til frádráttar sektum sem þarf að stórhækka.


Forsetinn snýr við blaðinu

Ólafur Ragnar Grímsson lætur ekki deigan síga. Hann er óþreytandi við að tala við fréttamenn og virðist eiga greiðan aðgang að fjölmiðlum eins og BBC. Þótt sumt, sem hann hefur sagt að undanförnu, orki tvímælis, blandast þó fáum hugur um að forsetinn vilji vel. Nú verða honum senn gerðar siðareglur og er það eftir öðru sem gera þarf í þessu þjóðfélagi.

Í fréttum BBC í morgun var vitnað í Ólaf Ragnar Grímsson þar sem hann fjallaði um íslenska jarðhitann. Í frétt útvarpsins sagði að hálfum mánuði eftir að gosið í Eyjafjallajökli hófst hafi forsetinn bent á að Íslendingar hefðu notið mikilla gæða vegna hitans í iðrum jarðar. Íslendingar væru fremstir þjóða sem nýttu slíka hreina orku sem skipti mannkynið miklu og fengist á sanngjörnu verði. Þannig væri íslenska eldfjallaorkan þjóðinni til blessunar.


Bloggfærslur 27. apríl 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband