Eldrefurinn

Að undanförnu hef ég gert umfangslmiklar tilraunir með Internet Explorer og Firefox-vafrarann. Hingað til hafa verið nokkur vandamál með skjálesara og bálrebbann, eins og einhver hefur nefnt firefox, en nú virðast þau að mestu fyrir bý. Ég sé ekki betur en bálrebbinn sé mun hraðvirkari en Internet Explorerinn og fram að þessu hafa færri tölvuveirur komið fram á honum. Fróðir menn segja mér að það geti breyst þegar hann verður útbreiddari.

Dolphin Computer Axxess ltd. vinnur stöðugt að því að bæta skjálesara si´na og þurfa starfsmenn fyrirtækisins a hafa sig alla við til þess að halda í við þróunina á netinu og hugbúnað sem tekur sífelldum breytingum. Allt þokast þetta þó í rétta átt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þú ættir að prófa opera í samanburði við firefox.. og svo í framhaldinu testa chroma á móti opera..

Efast ekki um að opera eða chroma vinni hug .þinn

Óskar Þorkelsson, 20.1.2010 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband