Hverjir fjúka?

Í gær var greint frá því að ríkisútvarpið ætlaði að spara um 20 stöðugildi vegna taprekstrar á stofnuninni (fyrirgefið, fyrirtækinu, því að þetta er orðið opinbert fyrirtæki, ohf.).

Sagt verður upp 8 einstaklingum, ekki ráðið í 8 stöður sem losna og fjórar afleysingastöður látnar eiga sig.

Ég vonaði að uppdráttarsýki ríkisútvarpsins væri á enda þegar þjónustusamningurinn var gerður við menntamálaráðuneytið. En það er öðru nær. Og nú bætist við aukinn fjármagnskostnaður vegna lægra gengis krónunnar.

Ríkisútvarpið er merk menningarstofnun sem hefur verið rekin með ólíkindum undanfarna áratugi. Í raun er nokkur hluti dagskrárgerðar byggður á ölmusum stofnunarinnar. Góðgjarnt fólk hefur annaðhvort gefið henni dagskrárefni eða vinnur á svo slæmum kjörum að iðulega þarf það að borga með sér. gæti ég talið upp nokkur dæmi. En alkunna er að flest lausráðið fólk hefur starfað hjá stofnuninni (fyrirgefið, fyrirtækinu) vegna þess að því þykir vænt um útvarpið og þykist kunna sæmilega vel til verka.

Nú hlýtur að verða fylgst með því hverjir verða látnir fjúka. Verða það dagskrárgerðarmenn eða millistjórnendur?

Gengur útvarpsstjóri fram fyrir skjöldu með góðu fordæmi og afsalar sér hluta launa sinna?

Mér þykir vænt um ríkisútvarpið hvort sem það er ohf eða opinber stofnun og vil hag þess sem bestan. Vill nú ekki Sjálfstæðisflokkurinn efla það í stað þess að halda því í viðjum yfirvofandi frjálshyggju?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband