Enn ein umræðan um Ísland og Evrópusambandið

Á morgunvaktinni á Rás eitt háðu þeir Ragnar Arnalds og Guðmundur Gunnarsson einvígi um Evrópusambandið. Mættust þar upphrópanir og sleggjudómar Evrópusinnans og ígrunduð rökhyggja þess er hefur allan heiminn undir.

Ragnar Arnalds vék réttilega að því að bankarnir hefðu eyðilagt krónuna en ekki krónan þá. Hann benti einnig réttilega á að það tæki Íslendinga mörg ár að komast inn í myntbandalag Evrópu þótt þeir fengju inngöngu í Evrópusambandið. Hagstjórnin hér á landi hefði einfaldlega verið þannig að við værum ótækir í evrópsku myntsamstarfi. Þá voru sterk rök hans um aðild Seðlabanka Evrópu að þeim vandræðum sem bankar Evrópulanda hafi lent í, en ríkissjóðir þessara landa hefðu orðið að koma til aðstoðar.

Þannig heldur umræðan áfram. Evrópusinnar virðast hins vegar forðast að minnast á það sem hér að ofan var sagt, að mörg ár munu líða þar til Íslendingar geta talist hæfir til þess að eiga samstarf um mynt með öðrum þjóðum. Aðild að Evrópusambandinu þýðir ýmislegt annað en evrur, krónur og lága vexti. Það er óráð að láta aðsteðjandi vandræði þrengja svo umræðuna að menn sjái einungis í eina átt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband