Hræðsla við ofbeldissinnaða ofstækismenn

Mikill meirihluti Íslendinga er hlynntur hvalveiðum. Langflestir gera sér grein fyrir því að nýtingu hvalastofnanna verður að haga þannig að þeir skaðist ekki.

Íslendingar veiddu hvali fram á 9. áratug síðustu aldar án þess að séð yrði að hvölum fækkaði hér við land endu höfðu menn lært af rányrkju fyrri tíma. Til þess að segja hverja sögu eins og hún er urðu Íslendingar fórnarlömb hálf- eða albrjálaðra ofstækissinna sem þóttust hafa meiri skilning á tilvist hvala en réttlætanlegri nýtingu auðlinda sjávarins.

Enn er það svo að fremstir í flokki hvalfriðunarsinna fara ofstækisfullir ofbeldismenn sem engu þyrma. Vonandi lætur sjávarútvegsráðherra ekki slíkt ofstæki hræða sig frá því að stuðla að skynsamlegri nýtingu þessarar auðlindar. Grænhyggja er ekki fólgin í því að banna veiðar heldur vitrænu sambýli við náttúruauðlindirnar. Þannig mætti afmarka ákveðin svæði hér við land þar sem hvalir væru alfriðaðir, ferðalöngum og vísindamönnum til augnayndis og gleði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband