Góð þjónusta og viðmót

Ekki stóð á svari frá vefstjóra ríkisskattstjóra. Segist hann vita af þessum vanda og úrbætur séu á næsta leiti.

Ókostir við smæð íslensks samfélags eru margir. Kostirnir eru þó ýmsir. Nálægð við embættis- og starfsmenn er meiri en víða annars staðar og gerir það borgurunum kleift að koma ábendingum á framfæri. Iðulega er farið eftir þeim og hafa verið nefnd nokkur dæmi í skrifum undirritaðs.

Ég hef þurft að eiga nokkur samskipti við starfsfólk ríkisskattstjóra og skattstofu Reykjaness. Á báðum þessum stöðum hefur verið leyst vel úr málum mínum og mér veitt öll hugsanleg aðstoð. Verður að segja sem er að viðmót starfsmanna er til fyrirmyndar og þekking þeirra á málefnunum góð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband