Auðmaðurinn og tengslin við auðmennina

Mbl.is greinir frá því í gær að Sjálfstæðisflokkurinn logi stafnanna á milli og er það víst lítil furða.

Í gær hitti ég framsóknarmann sem sagðimér að mikill og vaxandi kurr væri innan Framsóknarflokksins vegna formannsins og lítil svör fengjust við spurningum. Formaðurinn kvað hafa lofað að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa um auðlegð sína og sinna. Ekkert bólar víst á slíkum upplýsingum.

Þessi framsóknarmaður kvað svo komið fyrir sér að hann efaðist um að hann léði Framsóknarflokknum atkvæði sitt ef formaðurinn væri svo ónýtur að þora ekki að kannast við að eiga nokkrar miljónir á sparisjóðsbók. Sagðist hann hafa efasemdir um það hvernig faðir hans hefði komist yfir sínar milljónir en sonurinn formaðurinn ætti að greina skýrt og skorinort frá sínum eigum.

Það skyldi þó aldrei fara svo að formaður Framsóknarflokksins krossfesti flokkinn á sjálfum sér vegna þess að þora ekki að kannast við eigin auð og verðleika? Getur verið að auk auðmanna þurfi flokkurinn að slíta öll tengsl við formanninn til þess að taka til í eigin ranni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband