Gleðitíðindi og mikill léttir

Guðmundur Magnússon, nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands, er þaulreyndur félagsmálamaður og baráttumaður fyrir bættum hag öryrkja. Hann hefur víða sýn á hagsmuni fjölda öryrkjahópa sem er nauðsynlegur kostur hverjum formanni ÖBÍ.

Mikil hræðsla ríkti í hugum margra um að Sigursteinn Másson næði kosningu. Um þetta leyti eru fjögur ár frá því að hann var fyrst kjörinn formaður Öryrkjabandalagsins og rúmt hálft annað ár síðan hann hljópst úr þessu embætti. Starfstíma hans einkenndi ófriður og sundurlyndi. Sumum starfsmönnum Öryrkjabandalagsins og stofnana þess stóð beinlínis ógn af honum. Hann gekk iðulega um ganga með hnefann á lofti og otaði fingri að þeim sem hann átti erindi við. Fundir aðalstjórnar bandalagsins einkenndust af hótunum formannsins og gríðarlegum átökum, en Sigursteinn fékk nær engu áorkað í formannstíð sinni vegna andstöðu mikils hluta stjórnarinnar.

Guðmundi Magnússyni er óskað farsældar í starfi.


mbl.is Guðmundur er nýr formaður ÖBÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þarf nú alltaf tvo til að deila er það ekki?? 

Ég þekki ekki Sigurstein neitt, en þetta finnst mér hörð skrif án þess að færa nokkur rök fyrir þeim eða skýra út um hvað þær deilur snerust. En margar eru sögusagnirnar og hverjum eigum við að trúa sem búum út á landi og höfum ekki tækifæri til að eiga persónuleg samskipti við einn né neinn ykkar. Svona skrif eru ekki til þess fallandi að færa fólk nær saman í baráttu sem þarf að fara fram.

Ég þekki Guðmund ekki heldur en vona að honum farnist vel í starfi.

(IP-tala skráð) 24.10.2009 kl. 15:01

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband