Hvítlauksís!

Morgunblađiđ er merkilegt fyrir margra hluta sakir, einkum Sunnudagsblađiđ, enda vann ég ţar eitt sinn og skrifađi m.a. grein um mjólkurís. Ţćr uppskriftir sem ég birti komast ekki í hálfkvist viđ ţćr uppskriftir sem ég fann í Sunnudagsmogganum í dag.

p

Ég vona ađ Sverrir Páll Erlendsson, skáldbróđir á Leir, fyrirgefi mér ţótt ég birti hér uppskrift sem hann gaf Skafta Hallgrímssyni og birtist í sunnudagsblađi Morgunblađsins.

Hvítlauksís og mokkaís – góđir saman

Hvítlauksís

Ţessa uppskrift fékk Sverrir Páll senda frá ađstandendum hinnar árlegu Gilroy-hvítlaukshátíđar í Kaliforníu.

2 blöđ af matarlími

Ľ bolli af köldu vatni

2 bollar af mjólk

1 bolli af sykri

örlítiđ salt

2 msk. af sítrónusafa

2 hvítlauksrif, smátt söxuđ

2 bollar af rjóma

Matarlímiđ lagt í bleyti í kalt vatn. Mjólkin, sykurinn og saltiđ hitađ ađ suđu. Matarlímiđ leyst upp í heitri mjólkinni.

Mjólkurblandan er kćld nokkuđ. Ţegar hún er ylvolg er hvítlauknum og sítrónusafanum bćtt út í.

Ţessi blanda er kćld vel, uns hún rétt byrjar ađ ţykkna eđa stífna. Ţá er ţeyttum rjómanum bćtt út í, hrćrt vel og varlega og blandan loks sett í skál eđa bökunarform og fryst.

Mokkaís međ kaffibćttum rjóma og möndluflögum

Ísinn:

125 g suđusúkkulađi

4 egg

4 matskeiđar sterkt kaffi

1Ľ bolli rjómi

1 msk. kaffilíkjör

˝ bolli sykur

Rjóminn:

Ľ til ˝ l af rjóma

1-2 msk af rótsterku espressókaffi

Hnefafylli af ristuđum möndluflögum

Brćđiđ súkkulađiđ í vatnsbađi. Ţegar ţađ er bráđiđ, hrćriđ eggjarauđunum vandlega út í einni og einni í einu og kaffinu líka.

Stífţeytiđ rjómann og bćtiđ út í hann kaffilíkjörnum.

Stífţeytiđ eggjahvíturnar og blandiđ sykrinum smátt og smátt saman viđ ţćr.

Hrćriđ fyrst saman blönduna međ súkkulađinu og rjómann. Hrćriđ síđan eggjahvítublöndunni saman viđ.

Fryst í bökunarformi.

Boriđ fram í smáskálum og skreytt međ kaffibćtta rjómanum og möndluflögunum.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband