Af hverju stafaði eineltið?

Á vordögum 1991 tók nýr maður við stjórnartaumum þjóðarskútunnar. Hann hafði langa reynslu af sveitarstjórnarmálum en litla af landsmálum.

Fjórum árum síðar fékk hann til sín flokk manna sem hafði reynslu á báðum sviðum þjóðlífsins og var reiðubúinn að mynda helmingaskiptastjórn. Leiðtoginn réð þó mestu og óttuðust hann margir enda þótti vart heiglum hent að lenda í andstöðu við hann.

Þegar sveitarstjórnarmaðurinn komst til valda árið 1991 glöddust ýmsir og töldu að nú væri runninn upp nýr tími á Íslandi, tími frjálslyndis, glaðværðar og óheftrar frjálshyggju. Hafist var handa og á næstu 8 árum tókst að eyðileggja m.a. heilsteypt kerfi almannatrygginga svo að Ísland hvarf úr hópi vestrænna ríkja þar sem almannatryggingakerfið þótti til fyrirmyndar. Þær viðgerðir, sem fóru fram á kerfinu eftir að samtökum fatlaðra var nóg boðið, leiddu þó ekki til þess að kerfið næði fyri reisn til fulls.

Það er m.a. ráðríki sveitarstjórnarmannsins að kenna að við eigum enga þjóðhagsstofnun og eðlileg, pólitísk umræða var drepin í dróma um nokkurt skeið. Meira að segja birtust greinar um það í dagblöðum og fólk hvíslaði um það sín á milli að eitthvert ógnarvald hefði lagst á skoðanafrelsi landsmanna. Hver sú mara var virtist enginn þora að nefna uphátt.

Sá, sem nú stýrir þjóðarskútunni, virðist ekki þora að skera burtu þau mein sem nú hrjá íslenskt samfélag og skerða hæfni stjórnar landsins. Ráðherarnir, sem sofnuðu á verðinum, telja sig ekki eiga að segja af sér fyrr en þáttur þeirra í hruninu hafi komið í ljós og ekki er hægt að endurnýja umboð vissra stjórnenda vegna vinatengsla.

Ég dáðist á sínum tíma að framgöngu viðskiptaráðherra en óttaðist brátt ýmsar yfirlýsingar hans. Ég hélt að hann væri maður nýrra tíma og taldi víst að hann axlaði ábyrgð með því að víkja fyrir öðrum manni sem ekki hefði komið nærri þeim atburðum sem leitt hafa til þess ófarnaðar sem Íslendingar hafa beðið.

Ég ítreka það sem komið hefur fram á þessum síðum að ráðherrar fjármála og viðskipta væru menn að meiri ef þeir öxluðu sín skinn og hyrfu úr ríkisstjórninni. Hún stæði sterkari eftir. Í raun yrði kostur hennar bestur ef hún segði af sér og mynduð yrði utanþingsstjórn sem tækist á við þann vanda sem nú sverfur að landsmönnum og hefði til þess atbeina Alþingis.


mbl.is Stefnumótun látin í hendur annarra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárfestar hafa áhuga á Árvakri

Ekki kemur á óvart að ýmsir lykilstjórnendur og starfsmenn Árvakurs vilji slá skjaldborg um fyrirtækið. Eins og starfsemi þessa merka fjölmiðlafyrirtækis hefur þróast vilja vafalítið margir taka þátt í að slá skjaldborg um það. Öflugur fjölmiðill eins og Morgunblaðið getur og hefur verið aflvaki framfara. Fjölmiðlarnir sem tengjast blaðinu eru í raun þeir einu sem virðast telja sig bera einhverja samfélagsábyrgð hér á landi. Um það deila fáir.

Einkafulltrúi sjálfs sín í borgarstjórn Reykjavíkur

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi sjálfs sín, fór mikinn á fundi borgarráðs í fyrradag og bókaði margt.
Ólafur er velviljaður og hefur sett margt baráttumálið á oddinn. Mikið færi honum fram ef hann hugsaði málflutning sinn betur og vandaði til verka.
Oddsteinn Friðriksson sagði eitt sinn um mann nokkurn sem fékkst við að yrkja sálma að héldi hann þannig áfram yrði hann sjálfsagt liðtækur um nírætt. Hver veit nema Ólafur nái þeim árangri um áttrætt ef hann breytir um stíl.

Forystuskip íslenskra einkafjölmiðla í ólgusjó

Nú liggja fjölmiðlar Árvakurs undir áföllum, forystuskip einkarekinna fjölmiðla á Íslandi.
Morgunblaðið hefur á undanförnum árum verið í forystu þeirra fjölmiðla sem kannað hafa nýjar brautir og rutt þær. Hefur það starf verið unnið af stakri prýði og verður vonandi svo áfram.

mbl.is Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Árvakurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft er þörf en nú er nauðsyn

Stöndum vörð um Ríkisútvarpið!
Ég hef heyrt frá ýmsum starfsmönnum Ríkisútvarpsins að í bígerð sé að skerða hlut þess á auglýsingamarkaði og þrengja að stofnuninni á ýmsa vegu. Þetta hefur verið ljóst allar götur síðan Sjálfstæðisflokurinn náði undirtökum í menntamálum.
Á erfiðleikatímum gegnir almannafyrirtæki eins og Ríkisútvarpið meira hlutverki en nokkru sinni fyrr. Því ber að efla starfsemi þess.
Skoði menn nú hvers konar frálsir ljósvakamiðlar hafa verið byggðir upp hér á landi. Ætli ríkisútvarpið sé ekki einna frjálslyndast og víðsýnast þeirra allra.

mbl.is RÚV af auglýsingamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg velgengni fyrrum þingmanna á almennum vinnumarkaði

Það gladdi mig svo sannarlega að heyra að eftirlaunalögin virðast hafa verið ástæðulaus. Flestir, já, langflestir þeirra þingmanna, sem hætt hafa á þingi síðan lögin voru sett, hafa fengið starf við sitt hæfi.

Eins og mörgum er kunnugt var ég rekinn úr starfi framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins fyrir bráðum þremur árum. Ég hef að mestu verið atvinnulaus síðan, Gagnstætt þingmönnunum var einatt tekið fram í sráðningarviðtölum, að ég hefði verið of lengi starfandi við málefni fatlaðra og væri hætt við að ég hefði takmarkaða reynslu sem nýttist á almennum markaði. Átti þetta bæði við um opinberar stofnanir og einkafyrirtæki önnur en Morgunblaðið sem hefur í tvígang ráðið mig til sumarstarfa sem blaðamann.

Þess vegna ætti ég að ráða metnaðarfullu, fötluðu fólki frá því að hasla sér völl of lengi innan samtaka fatlaðra eða stofnana sem sinna málefnum þeirra. Reynið heldur að hasla ykkur völl á Alþingi. Þá verður ykkur framinn vís:)


Vafasamt uppátæki

Stundum gengur ákefð fréttamnna út yfir allan þjófabálk. Sýnist mér sem svo hafi verið með tilraun G. Péturs Matthíassonar til þess að eiga viðtal við Geir Haarde.

Greinilegt er að Geir hefur verið vanbúinn að svara svo viðkvæmri spurningu sem Pétur hugðist leggja fyrir hann og hefur misst stjórn á sér. Sem vitur maður eftir á sé ég að þeir hefðu getað báðir komist betur út úr þessu samtali. Hitt er þó sannast að Pétur hefði ekki átt að birta þetta myndbrot núna úr því að það var ekki gert þá.

Ádrepa Páls Magnússonar er skiljanleg og Pétur er fullsæmdur af því hvernig hann lauk málinu. Myndbandið ætti hann hins vegar að fjarlægja af heimasíðu sinni.

Það góða við myndbrotið er að Geir virðist ekki skaplaus þótt margir frýi honum hugar þegar Seðlabankinn á í hlut.


Konsert Veigars Margeirssonar

Ég vaknaði í morgun fyrir kl. 6 eins og vant er flesta morgna. Saxófónkonsert Veigars Margeirssonar var fyrsta verkið sem leikið var eftir fréttirnar - konsertinn er með öðrum orðum kominn út á geisladiski. Sigurður Flosason leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn guðmundar Óla Gunnarssonar.

Verkið er rómantískt og þægilegt áheyrnar - hljómgæti sem margur getur notið - mun hollara en flest sælgæti sem fólk leggur sér til munns þessa dagana og endist mun lengur.


Byltingarkenndar breytingar

Bandarísku blindrasamtökin hafa náð samkomulagi við samtök útgefenda og rithöfunda um að lesendur, sem geta ekki nýtt sér prentað mál geti fengið aðgang að bókum gegnum þjónustu Google. Ef samkomulagið verður staðfest verður útgefendum gert skylt að sjá til þess að bækurnar verði aðgengilegar svo að fólk geti beitt nútímatækni til þess að nálgast þær rituðu heimildir sem á boðstólnum eru.

Nú þegar er gríðarlegur fjöldi bóka aðgengilegur fyrir tilstilli Google eða um 7 milljónir titla. Verður þetta einhver mesta bylting sögunnar í bókamálum blindra og sjónskertra auk annarra sem eru lesfatlaðir. Gert er ráð fyrir að lesfatlaðir notendur geti fengið bækur lánaðar eða keytar allt eftir því sem við á hverju sinni og lesið þær með þeirri tækni sem nýtist þeim best. Þetta metnaðarfulla verkefni ætti að verða Íslendingum og öðrum Evrópuþjóðum hvatning til álíka byltingarkenndra verkefna.

Fréttin fylgir hér að neðan og er Sigrúnu Þorsteinsdóttur þakkað af alhug fyrir að vekja athygli á fréttinni.

Google Settlement with Authors, Publishers Will Have Positive Results for the Blind Terms of Proposed Settlement Agreement Will Revolutionize Blind People's Access to Books Baltimore, Maryland (October 31, 2008): The National Federation of the Blind, the nation's leading advocate for access to information by the blind, announced today that the recent settlement between Google and authors and publishers over the Google Books project, if approved by the courts, will have a profound and positive impact on the ability of blind people to access the printed word. The terms of the settlement that was reached on October 28, among Google, the Authors Guild, and the Association of American Publishers, on behalf of a broad class of authors and publishers, allow Google to provide the material it offers users "in a manner that accommodates users with print disabilities so that such users have a substantially similar user experience as users without print disabilities." A user with a print disability under the agreement is one who is "unable to read or use standard printed material due to blindness, visual disability, physical limitations, organic dysfunction, or dyslexia." Blind people, like other members of the public, will be able to search the texts of books in the Google Books database online; purchase some books in an accessible format; or access accessible books at libraries and other entities that have an institutional subscription to the Google Books database. Once the court approves the settlement, Google will work to launch these services as quickly as possible. Dr. Marc Maurer, President of the National Federation of the Blind, said: "Access to the printed word has historically been one of the greatest challenges faced by the blind. The agreement between Google and authors and publishers will revolutionize access to books for blind Americans. Blind people will be able to search for books through the Google Books interface and purchase, borrow, or read at a public library any of the books that are available to the general public in a format that is compatible with text enlargement software, text-to-speech screen access software, and refreshable Braille devices. With seven million books already available in the Google Books collection and many more to come, this agreement means that blind people will have more access to print books than we have ever had in human history. The blind, just like the sighted, will have a world of education, information, and entertainment literally at our fingertips. The National Federation of the Blind commends the parties to this agreement for their commitment to full and equal access to information by the blind." "Among the most monumental aspects of the settlement agreement," said Jack Bernard, assistant general counsel at the University of Michigan, "are the terms that enable Google and libraries to make works accessible to people who have print disabilities. This unprecedented opportunity to access the printed word will make it possible for blind people to engage independently with our rich written culture. Moreover, it is refreshing to find accessibility for people with disabilities explicitly included upfront, rather than begrudgingly added as an afterthought." "One of the great promises of the settlement agreement is improving access to books for the blind and for those with print disabilities," said Dan Clancy, engineering director for Google Book Search. "Google is committed to extending all of the services available under the agreement to the blind and print disability community, making it easier to access these books through screen enlargement, reader, and Braille display technologies." _______________________________________________ To manage your subscription, visit http://list.webaim.org/ Address list messages to webaim-forum@list.webaim.org


Ábyrgir afglapar

Ingibjörg Sólrún spyr þessarar spurningar í viðtali sem nú fer fram.

Ætli ríkisstjórnin að lafa áfram þurfa flokkarnir að gera sér grein fyrir því að ráðherrar viðskipta- og fjármála eru vissulega afglapar. En eru þeir ábyrgir afglapar?

Stjórnarflokkarnir þurfa að hefjast handa við að taka til í eigin ranni vilji þeir endurheimta dálítið traust á meðal þjóðarinnar ef hægt er að halda öðru fram en að ríkisstjórnin sé öll í hópi ábyrgra afglapa.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband