Vafasamt uppátæki

Stundum gengur ákefð fréttamnna út yfir allan þjófabálk. Sýnist mér sem svo hafi verið með tilraun G. Péturs Matthíassonar til þess að eiga viðtal við Geir Haarde.

Greinilegt er að Geir hefur verið vanbúinn að svara svo viðkvæmri spurningu sem Pétur hugðist leggja fyrir hann og hefur misst stjórn á sér. Sem vitur maður eftir á sé ég að þeir hefðu getað báðir komist betur út úr þessu samtali. Hitt er þó sannast að Pétur hefði ekki átt að birta þetta myndbrot núna úr því að það var ekki gert þá.

Ádrepa Páls Magnússonar er skiljanleg og Pétur er fullsæmdur af því hvernig hann lauk málinu. Myndbandið ætti hann hins vegar að fjarlægja af heimasíðu sinni.

Það góða við myndbrotið er að Geir virðist ekki skaplaus þótt margir frýi honum hugar þegar Seðlabankinn á í hlut.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband