Ég var óþolinmóður og fór inn á mbl.is eftir miðnætti og sótti mér tónlist frá tonlist.is. En mér reyndist ógerlegt að átta mig á því hvernig ég ætti að þiggja tónlistargjöf Smekkleysu. Ef til vill getr einhver ráðið bót á fávisku minni og vankunnáttu.
Stjórnmál og samfélag | 12.12.2008 | 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ríkisútvarpið og Árvakur eru í svipaðri stöðu. Stöð tvö og Bylgjan, sem núverandi framkvæmdastjóri Árvakurs átti þátt í að stofna, rýrðu hlut Ríkisútvarpsins og settu það í ærinn vanda enda er vart rúm fyrir tvo öfluga ljósvakafjölmiðla á Íslandi. Jón Ásgeir velgdi Árvakri undir uggum með því að ryðjast inn á markaðinn með ókeypis fréttablað
Stuðningsmenn Árvakurs og Ríkisútvarpsins ættu nú að snúa bökum saman og standa vörð um þessar merku stofnanir og leyfa Stöð tvö að engjast. Farið hefur fé betra.
![]() |
Raddir fólksins hjá saksóknara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 11.12.2008 | 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tölurnar sýna svo að ekki verður um villst að þjóðin treystir ekki sumum stjórnmálamönnum og styrkir það enn þá skoðun sem sett hefur verið fram að fjármála- og viðskiptaráðherra eigi að segja af sér ásamt seðlabankastjóra sem stóðu ekki vaktina.
Ég hef hvatt til þess að safnað verði undirskriftum á netinu eða útbúin heimasíða þar sem menn geti sent nokkrum einstaklingum bréf með áskorun um afsögn.
Hvenær skyldu ráðamenn þroskast svo að þeir læri hvað ábyrgð er?
![]() |
Jóhanna nýtur mests trausts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 10.12.2008 | 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég skil reiði fólks og vil gjarnan leggja þeim lið með einhverjum hætti sem vilja koma mótmælum sínum á framfæri.
Ég hef til dæmis velt fyrir mér hvers vegna enginn setji upp netsíðu þar sem skorað er á ráðherra fjármála og viðskipta að segja af sér. Það eitt út af fyrir sig væri talsverður árangur og í raun fyrsta skrefið í því uppgjöri sem verður að eiga sér stað hér á landi.
Þeir sem létu illa á Alþingi í gær og létu hendur skipta eru haldnir ákveðinni siðblindu engu síður en ráðamenn þessa lands. Það var t.d. ömurlegt í gær að sitja í Háskólabíói og hlusta á tvo hálaunamenn verkalýðshreyfingarinnar sem hafði hvorugum dottið í hug að lækka laun sín vegna þeirra erfiðu tíma sem nú ríða yfir. Annar þeirra hreykti sér af því að hafa lagt til að forystumenn tækju sér ekki hærri laun en fimmföld meðallaun hjá VR, sem eru 400.000 kr á mánuði. Þá var ekki síður dapurlegt að hlusta á viðskiptaráðherra sem algerlega fyrirmunað að skilja hugtakið ábyrgð.
Síðasta dæmið um siðblindu er síðan neitun skilanefnda bankanna um að neita skattrannsóknastjóra um gögn sem tengjast dótturfyrirtækjum á erlendri grundu. Greinilegt er að bíða á eftir lögum sem þvinga þær til þess.
Ég endurtek það sem sagt hefur verið á þessari síðu að nokkrir einstaklingar í opinberri þjónustu eiga tafarlaust að segja af sér. Þeir skulu nefndir hér í stafrófsröð:
Árni Mathiesen. Hann stóð ekki vaktina og lét fljóta sofandi að feigðarósi.
Baldur Guðlaugsson. Hann nýtti sér upplýsingar sem fram komu á fundi í Lundúnum og seldi hlutabréf sem hann átti. En sú tilviljun!
Björgvin Sigurðsson. Hann stóð ekki vaktina og lét fljóta sofandi að feigðarósi.
Davíð Oddsson. Ávirðingar hans eru margar: ósannindi í erlendum fjölmiðli, dylgjur á opinberum fundum, upplýsingaleynd í skjóli bankaleyndar auk þess sem hann stóð ekki vaktina og tók þátt í því að fleyta Íslandi að feigðarósi.
Stofni nú einhver netsíðuna www.afsogn.is og ekki skal standa á mér að senda mönnum áskorun um afsögn.
Ég hélt að Samfylkingin myndi reyna að siðvæða íslensk stjórnmál en forysta hennar er jafnsiðblind forystu Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmál og samfélag | 9.12.2008 | 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í sömu könnun kemur fram að minnihluti Sjálfstæðismanna er annarrar skoðunar. Rétt er að vekja athygli á að sjálfstæðismönnum fer nú fækkandi að því er virðist.
Skrýlslætin á Alþingi í dag varpa bletti á heiður þeirra sem berjast fyrir breytingum. Ofbeldi þjónar engum tilgangi.
Stjórnmál og samfélag | 8.12.2008 | 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Athygli mína vöktu upplýsingar um fjölda lesblindra fanga, en rannsóknir víða erlendis hafa sýnt svo að ekki verður um villst að samhengi getur verið á milli lesblindu og glæpa. Ástæðuna rekja flestir fræðimenn til þess að börn flosni upp úr skólum vegna lesblindu og fari síðan halloka á lífsbrautinni.
Morgunblaðið heldur áfram að fjalla um þessi mál í leiðara blaðsins í gær. Bendir blaðið á að ekki megi spara á sviði sérkennslu í íslenskum skólum enda vafasamt hvort slíkur sparnaður skili efnahagslegum ávinningi.
Málefni lesblindra hafa verið í hálfgerðum ólestri hér á landi. Á seinustu árum Björns Bjarnasonar á stóli menntamálaráðherra var það óþurftaverk framið að leggja lestrarmiðstöð KHÍ niður, en þar höfðu m.a. farið fram greiningar á lesblindu. Eftir greiningu á vegum miðstöðvarinnar fengu lesblind börn og unglingar m.a. þjónustu námsbókadeildar blindrabókasafns Íslands og gat það skipt sköpum í námi þeirra.
Námsgagnastofnun og Blindrabókasafn Íslands hafa verið helstu hjálparstofnanir lesblindra á Íslandi. Lesblindir Íslendingar fá hins vegar litla sem enga styrki til kaupa á hjálpartækjum og misrétti í þeirra garð er margvíslegt.
Nú þegar sverfur að um stundarsakir í íslensku þjóðfélagi ber brýna nauðsyn til þess að huga að málefnum lesblinds fólks á Íslandi og koma þeim á svipaðan rekspöl og á öðrum Norðurlöndum. Íslendingar hafa ekki framar efni á að kasta hæfileikum þessa fólks á glæ með sinnuleysi sínu.
Eins ógæfa er annars mein.
Stjórnmál og samfélag | 7.12.2008 | 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í kvöld flutti víkingur Heiðar 3. píanókonsert Bela Bartoks af stakri snilld ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eftir hjartanleg fagnaðarlæti áheyrenda lék hann tvö aukalög. Annað þeirra var útsetning hans á laginu Litfríð og ljóshærð eftir Emil Thoroddsen, tónskáld og píanóleikara, enn Víkingur Heiðar vinnur nú að píanóútsetningum íslenskra sönglaga. Var útsetningin þvílík snilld að sjálfur Liszt Ferens hefði verið fullsæmdur af.
Hljómsveitin lék vel í kvöld, en auk konsertsins voru á dagskrá Leónóruforleikurinn og Sinfónía nr. 8 eftir Beethoven.
Að lokum þykir rétt að vekja athygli á meðfylgjandi frétt af heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands um leið og hljómsveit, stjórnanda og hljóðriturum eru færðar árnaðaróskir.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Rumon Gamba, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, eru tilnefnd til hinna virtu Grammy-verðlauna. Um er að ræða verðlaun sem veitt eru fyrir bestu frammistöðu
hljómsveitar og hljómsveitarstjóra á hljómplötu.
Tilnefninguna fær hljómsveitin fyrir geisladisk sinn með verkum eftir franska tónskáldið Vincent d´Indy, sem breska Chandos-útgáfan gaf út fyrr á þessu
ári.
Ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands eru Konunglega skoska hljómsveitin, Sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar, og Holllywood Studio
sinfóníuhljómsveitin tilnefndar í þessum flokki.
Tónlist | 5.12.2008 | 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leiðarahöfundar Morgunblaðsins hafa einnig öðru hverju ráðist að Ríkisútvarpinu með ómaklegum hætti og virðast ekki gera sér grein fyrir þeirri samfélagsþjónustu sem stofnunin sinnir öðrum fjölmiðlum fremur.
Margt af því sem nýr dagskrárstjóri, Sigrún Stefánsdóttir, hefur tekið sér fyrir hendur, er ágætt og dagskráin hefur að mörgu leyti gengið í endurnýjun lífdaga. Annað nær ekki nokkurri átt.
1. Hringlandagangurinn með Morgunvaktina er með ólíkindum. Um stundarsakir var hætt að birta viðtöl eftir fréttir kl. 8. Skömmu síðar tóku þulir að bjóða til sín gestum.
2. Nú er KK tekinn við ásamt umsjónarmönnum. Leikin er tónlist og eitt viðtal eftir 8-fréttir. Ef spara hefur átt í rekstri útvarpsins var ekki leiðin sú að ráða tónlistarmann til þess að sjá um seinni hluta Morgunvaktarinnar. Tónlistarsmekkur hans er fremur þröngur og of mikið ber á frumstæðri, bandarískri tónlist. Kristján Kristjánsson er hins vegar slíkur ágætis maður að leitt er að þurfa að setja þessa gagnrýni á skjáinn.
3. Þjónustuhlutverk Morgunútvarpsins hefur einnig sætt hringlandagangi. Um skeið var á dagskrá svokölluð dagbók en hún hefur verið lögð af.
4. Margir hlusta á Morgunútvarpið upp úr kl. 8 á morgnana. Vekur því furðu að ekki skuli lögð áhersla á upplýsingamiðlun á þeim tíma.
5. Um eins árs skeið var á dagskránni þátturinn doktor Rúv. Að sumu leyti var hann gagnlegur en of löngum tíma var eytt í hvert málefni enda hefur nú þátturinn lagt upp laupana og Heimsaugað tekið við.
6. Sagt er að sumir þáttagerðarmenn hafi verið ráðnir til starfa fyrir mun hærri laun en aðrir stjórnendur fá enda hefur dagskrárstjórinn haldið því fram að umbuna þurfi góðu fólki. Sumir þessara verktaka hafa enga reynslu af þáttagerð, eru illa máli farnir og hefðu fyrr á árum ekki talist standa undir þeim kröfum sem gerðar voru til þáttastjórnenda í Ríkisútvarpinu. Sem sagt, lítill sem enginn metnaður.
Nú á tímum niðurskurðar og endurmats verður að endurmeta laun stjórnenda opinberra fyrirtækja sem eru í eigu ríkisins. Þar er Ríkisútvarpið ekki undanskilið. Útvarpsstjóri á að ganga á undan með góðu fordæmi og afsala sér a.m.k. þriðjungi launa sinna. Þá getur málflutningur hans talist trúverðugur.
Stjórnmál og samfélag | 5.12.2008 | 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Davíð var umkringdur lífvörðum og þorði ekki að tala við blaðamenn. Hann hrökklaðist undan þeim og svaraði með skætingi.
Geir efndi til óformlegs blaðamannafundar og svaraði heldur geðvonskulega áleitnum spurningum fréttamanns Ríkissjónvarpsins.
Norski ráðgjafinn hefur sennilega gleymt að taka fram að menn verði að gæta stillingar sinnar frammi fyrir blaðamönnum, þótt þeir séu íslenskir.
Grafalvarlegast var þó að hlusta á Jón Gunnarsson. Hann virðist þeirrar skoðunar að stokka þurfi upp í stjórn og embættismannaliði. Það gæti þó orðið erfitt því að enginn tekur gagnrýni á sig sem gagnrýni á sjálfan sig. Íslenskum ráðherrum virðist fyrirmunað að skilja hugtakið ábyrgð.
Sennilega hefur seðlabankastjórinn haft eitthvað til síns máls þegar hann lagði til að skipuð yrði þjóðstjórn. Þá hefði fylgi Sjálfstæðisflokksins ekki hrunið og Vinstri grænir hefðu orðið að gerast ábyrgir.
Stjórnmál og samfélag | 4.12.2008 | 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í þeirri rannsókn sem hrundið verður af stað á því sem gerst hefur hlýtur bankaleyndinni að verða aflétt af Davíð og kemur þá í ljós hvert trompið er.
Þessi afstaða seðlabankastjórans minnir mig óþægilega á orð eins samstarfsmanns og kunningja Davíðs til margra ára, en hann sagði eitt sinn við mig:
"Davíð á jafnan eitthvert leynitromp uppi í erminni sem hann kastar fram þegar minnst varir. Ég óttast að hann varpi því fram þegar þið eruð óviðbúnir og getið ekki varið ykkur."
Líkur benda til að þessum mæta manni hafi ratast rétt á munn.
Stjórnmál og samfélag | 4.12.2008 | 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 320104
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar