Davíð hefur enn tækifæri

Viðtalið við Davíð Oddsson í Kastljósi kvöldsins var um margt athyglisvert. Við lá að Davíð væri vorkunn um tíma ef hann varð ekki allt að því aumkunnarverður.

Of langur tími fór í það hjá honum að reyna að gera lítið úr spyrjandanum, karpa við hann og vorkenna sjálfum sér í stað þess að svara spurningum. Hins vegar virtist spyrjandinn gæta þess að leggja ekki öll spil á borðið og hvor þeirra sýndi viss klókindi.

Davíð er sama markinu brenndur og margir íslenskir stjórnmálamenn. Hann skilur ekki hvað er að axla ábyrgð. Maður sem stýrði seðlabankanum um það leyti sem fjármálakerfið hrundi átti hiklaust að víkja eins og reyndar fyrri ríkisstjórn. Ástæðurnar eru ýmsar. Davíð og hans fylgismenn eru höfundar þeirrar efnahagsstefnu sem leiddi þjóðina í ógöngur og það skiptir engu þótt hann haldi því fram að menn hafi farið of óvarlega. Hann var einn af höfundum kerfisins og í raun holdgervingur þess.

Þegar svo er komið að maður verður persónugervingur vissrar andúðar vegna fortíðar sinnar og jafnvel nútíðar á hann að stíga til hliðar. Davíð hefði fyrir löngu átt að yfirgefa Seðlabankann og helga sig því mikla verki að koma lögum yfir seka fjárglæframenn Íslendinga sem hann þykist kunna svo góð skil á. Það getur hann ennþá gert og vonandi ber hann gæfu til að taka slíkt heillaskref áður en hann verður öllum heillum horfinn.


Gönuhlaup eða pólitískt sjálfsmorð

Það var ótrúleg en jafnframt sannfærandi fréttaskýring Birgis Guðmundssonar á Morgunvaktinni í morgun þegar fjallað var um Seðlabankann og Höskuld Þórhallsson. Birgir hélt því fram að um væri að ræða forleikinn að prófkjörsslag millum þeirra Höskuldar og Birkis Jóns Jónssonar. Taldi Birgir að Höskuldur hefði sjálfsagt "skorað stig" hjá einhverjum.

Því var haldið fram á þessari síðu í gær að drög að reglugerð um fjármálastofnanir í Evrópu hefðu ekkert að gera með það frumvarp sem ríkisstjórnin vill fá úr viðskiptanefndinni og enn frekari heimildir hafa komið fram um þetta nú í morgun. Því hljóta menn að efast um hæfni þessa villuráfandi þingmanns þegar hann lætur gabba sig til þess að taka á seðlabankamálinu með þvílíkum vettlingatökum sem honum einum er gjarnt. Ætli menn að nota vettlingatök þarf að vanda efnið í vettlingunum.


Enn eitt reiðarslagið

Huld Magnúsdóttur, fyrrum stjórnanda hjá Össuri, hefur verið boðið embætti forstjóra nýrrar Þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

Ég sótti um starf sérfræðings á vegum Blindrabókasafns Íslands sem var ætlað að vinna hjá nýju stofnuninni 1. desember sl og fékk aldrei svar við þeirri umsókn.

Þegar embætti forstjóra var auglýst laust til umsóknar eftir áramótin sótti ég einnig um það enda taldi ég mig hafa ærna þekkingu og reynslu á þessu sviði.

Þeirri, sem nú tekur við starfinu án nokkurrar þekkingar á málaflokknum er óskað velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur.


Svanasöngur Höskulds Þórhallssonar í Framsóknarflokknum

Höskuldur framdi ótrúlegt hrekkjabragð í morgun í viðskiptanefnd Alþingis, einkum þegar flest bendir til að nýjar reglur Evrópusambandsins skipti engu máli vegna þeirra breytingar sem stjórnarmeirihlutinn ásamt meirihluta þjóðarinnar vilja gera á yfirstjórn Seðlabankans.

Sú saga hefur komist á kreik að Höskuldi hafi verið boðin aðild að þingflokki Sjálfstæðismanna og jafnvel hyggist hann fara í framboð á vegum flokksins. Tekið skal fram að heimildirnar hafa ekki fengist staðfestar, en sagan flýgur hátt.

Eitt er víst. Þetta er ekki góð byrjun hjá Framsókn.


Ólafur biðju útrásarvíkingana að skila aftur illa fengnu fé

Í Morgunblaðinu í dag er hárbeitt grein eftir Einar Má Guðmundsson þar sem hann rekur m.a. hvernig Samfylkingin hefur farið vill vegar að undanförnu. Telur hann þessa villu jafnvel eiga sér rætur í fjármálaráðheratíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Endir greinarinnar er birtur hér.

„Þróun forsetans er hnignun jafnaðarstefnunnar í hnotskurn og slíkt verður ekki gert upp í einni áramótaræðu. Af hverju kallar forsetinn ekki vini sína, útrásarvíkingana, til sín og skipar þeim að skila góssinu, því hagfræðingar segja að það sé ekki fræðilegur möguleiki að búið sé að eyða þeim skuldum sem stofnað var til. Þetta er eina leið forsetans til að ávinna sér traust þjóðarinnar. Í stað þess að bjóða útrásarvíkingunum í mat með amerískum fjárglæfrakonum á hann að taka þá á beinið og skikka þá til. Þannig myndi forsetinn skrá nafn sitt í sáttargerðarbók sögunnar eins og gert var á Þingvöllum fyrir um þúsund árum. Ella mun hann horfa upp á meiri stéttaskiptingu, dýpri skotgrafir og algjört vantraust, því bæði hann og jafnaðarmennirnir í Samfylkingunni tóku þátt í að blekkja þjóðina og

alþjóðasamfélagið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þar liggur

ábyrgðin, blaðið sem nú þarf að snúa við.“


Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fær íslensku blaðamannaverðlaunin

Ríkisútvarpið skýrði frá því í þessu að Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur hefðu verið veitt íslensku blaðamannaverðlaunin í dag. Þóra Kristín er margreyndur frétta- og blaðamaður og hefur oft og iðulega ekki skirrst við að stilla viðmælendum upp við vegg. Hún er hugmyndarík, útsjónarsöm, skemmtileg, ákveðin og umfram allt sanngjörn. Í höndum hennar hefur sjónvarp mbl.is orðið einstakur fréttamiðill í sinni röð á Íslandi. Þóra Kristín er einn þeirra blaðamanna hér á landi sem eru á heims mælikvarða. Þar í flokki eru einnig Önundur Páll Ragnarsson, Jóhann Hauksson og Ragnar Axelsson, Sigrún Davíðsdóttir o.fl.


Hressandi hjólreiðar

Við hjónin notuðum tækifærið eftir hádegi og drógum björg í bú. Ormurinn blái var leiddur út úr fylgsni sínu. Eftir að við höfðum klæðst viðeigandi skjólfötum var haldið í Krónuna og Bónus.

Aðdrættir taka jafnan dálítinn tíma og þegar haldið var heimleiðis var skollinn á suðvestan stormur. Þótt regnið berði okkur og vindurinn gnauðaði var þetta einkar skemmtileg áreynsla. Furðulegt er hvað fáir halda hjólandi í verslunarferðir.


Nína Margrét á ferð og flugi

Í kvöld var okkur hjónunum boðið á tónleika á heimili þeirra heiðurshjóna, Egils Rúnars Friðleifssonar og Sigríðar Björnsdóttur. Flutti þar Nína Margrét Grímsdóttir tónlist eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Mozart, Pál Ísólfsson, Chopin og Mendelson, en verk þessi leikur hún í Salnum á þriðjudagskvöld og í Rómaborg föstudaginn 27. þessa mánaðar.

Nína Margrét fer nú allvíða og flytur list sína. Í september hefur henni verið boðið að halda tónleika í 5 kínverskum borgum. Þar leikur hún bæði íslensk og kínversk píanólverk auk þekktra verka kunnra meistara.

Nínu Margréti og þeim hjónum, Agli Rúnari og Sigríði, eru færðar alúðarþakkir fyrir þessa ánægjulegu kvöldstund. Nínu Margréti er árnað allra heilla.


Tillögur minnihlutans geta orðið málinu til framdráttar

Í fljótu bragði verður ekki annað séð en tillögur Sjálfstæðismanna um Seðlabankann séu til bóta. Það væri til fyrirmyndar að stjórnin og Framsóknarmenn tækju mið af þeim við lokaafgreiðslu frumvarpsins og þingheimur næði þannig sátt um þetta þjóðþrifamál.
mbl.is Breytingartillögur til bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brottvísun úr skóla

Eitthvað hlýtur að vera að í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ítrekaðar ofbeldisárásir valda því að fólk staldrar við og veltir fyrir sér ástæðunum.

Háværar kröfur heyrast um að ofbeldismönnum verði vísað úr skóla. Það leysir ekki annan vanda en þann að þeir flytja sig annað og fremja þar ofbeldisverk sín. Hitt heyrist minna rætt hvort ekki sé hægt að leita leiða til þess að koma í veg fyrir þessa hegðun. Hvar liggur meinið? Hvað hafa skólayfirvöld gert til þess að uppræta það?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband