Flugur í fjöru

Birgir litli Þór var hjá ömmu og afa í fóstri í nótt. Við ætluðum í fjöru í dag að sýsla ýmislegt skemmtilegt. En sá stutti fór að kasta upp í morgun svo að ekkert varð af fjöruferð og faðir hans sótti hann um nónbil.

Við hjónakornin fórum út í Gróttu áðan og hlustuðum á Atlantshafið spjalla við vitann. Greina mátti þungar drunur brimsins. Stafalogn var og undursamlegt veður. Í svona veðri hefði verið gaman að hljóðrita tónbrigði sjávarins.

Við héldum göngunni áfram meðfram ströndinni og nutum blíðunnar. Ský dró fyrir sólu. Sólin gbraust fram úr skýjum þegar dró að lokum göngunnar og skreytti umhverfið. Í fjörunni voru flugur enda lýkur febrúar í dag og senn vorar. Gísli Halldórsson, leikari, notaði einungis tvær árstíðir. Sumarið hófst 1. mars og veturinn 1. nóvember. Hvorki var haust né vor í hans dagatali.


Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum

Þá er orðið ljóst að Ingibjörg Sólrún býður sig fram í annað sætið í Reykjavík, Jóhanna verður áfram forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún stefnir að því að verða áfram formaður Samfylkingarinnar.

Jón Baldvin Hannibalsson hefur jafnframt ákveðið að gefa kost á sér til formennsku. Vafalaust veit hann að Ingibjörg muni hafa hann undir. Samviska Jóns segir honum samkvæmt viðtali Ríkisútvarpsins við hann að hreinsa þurfi til í forystu Samfylkingarinnar og þess vegna bjóði hann sig fram gegn Ingibjörgu sem var við völd í efnahagshruninu.

Sitthvað er til í þessu hjá Jóni. Ingibjörg tók virkan þátt í því ásamt Geir Haarde og Ólafi Ragnari að fegra íslensku útrásina löngu eftir að henni hlaut að hafa orðið ljóst hvert stefndi. Skiptir þá enguhvort Davíð varaði hana við.

Jón Baldvin verður þó einnig að muna að hann átti drjúgan þátt í að leiða frjálshyggjuöflin til valda árið 1991 þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð. Þá hófst undir eins árás á velferðarkerfið og henni linnti ekki fyrr en stjórnvöld biðu ósigur fyrir Garðari Sverrissyni og Öryrkjabandalaginu. Undanhaldið hófst árið 1998.

Það voru að vísu fleiri sem langaði í ríkisstjórn með Davíð vorið 1995 þegar Viðeyjarstjórnin var í andarslitrunum og þar á meðal fyrrum formann Alþýðubandalagsins, en ég heyrði sjálfur þegar hann biðlaði til Halldórs Blöndals um stuðning. Fáir vissu þá að Davíð hafði ákveðið að taka Halldór Ásgrímsson í stjórnina og fórna Jóni.

Þar sem Jón Baldvin var annar höfundur Viðeyjarstjórnarinnar sem hóf árásirnar á velferðarkerfið hlýtur hann að velta fyrir sér hver eigi að kasta fyrsta steininum. Jafnframt verður Samfylkingin að svaraþví afdráttarlaust hvort Jóhanna verði við völd út næsta kjörtímabil fái flokkurinn umboð til að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum. Fortíðin hræðir í þessum efnum sem öðrum.


Viðkvæmt hljóðkort

Fyrir tveimur árum keypti ég Digigram UAX-220 Mic hljóðkorttil þess að nota við HP-fartölvu. Það virtist ganga sæmilega un stundarsakir. En Adam var ekki lengi í Paradís. Fljótlega fór að bera á truflunum í hljóðkortinu og fartölvan fraus. A.m.k. tvö hljóðrit eyðilögðust hjá mér.

Nú er þetta eitt af hinum svo kölluðu Plug and Play tækjum. Einhverjir héldu því fram að um reklavandamál væri að ræða. Svo virðist vart vera. Í kvöld halaði ég niður einhverjum rekli frá Digigram en það skipti engu. Ég tengdi hljóðkortið við borðvélina og þar virkaði það eins og best varð á kosið.

Mér þykir í raun slæmt að geta ekki notað hljóðkortið við fartölvuna. Á hana vinn ég útvarpspistla mína og það myndi spara mér talsverðan tíma að geta hljóðritað kynningar beint á tölvuna í stað þess að færa þær af Nagra-hljóðrita yfir á tölvu.

Greinilegt er að þetta er eitthvert USB-vandamál. Annaðhvort koma fram truflanir, tölvan frýs eða rekur hreinlega upp öskur. Þá þýðir ekkert annað en aftengja hljóðkortið.

Tölvan sem ég nota er HP eins og ég sagði áðan með tveimur USB-tengjum. Ég er með 1 gb í innra minni. Um tíma hélt ég að talgervillinn truflaði hljóðkortið en svo virðist ekki vera. Ég hef reynt að slökkva á honum og séð hef ég til þess að hann ræsi sig ekki sjálfkrafa. En allt kemur fyrir ekki. Á heimasíu Digigram er mönnum ráðlagt að taka allar orkusparnaðarleiðir úr sambandi og gerði ég það einnig. Það dugði ekki að heldur. Þetta verður því víst óleyst vandamál um tíma.


Nýi seðlabankastjórinn

Það er greinilegt að nýi seðlabankastjórinn ætlar ekki að eltast við fortíðina heldur horfa þess í stað fram á veginn. Það var klókt hjá forsætisráðherra að setja norskan hagfræðing í embættið þar til fundinn verður annar maður. Hann hlýtur að geta talað við alla en ekki suma eins og sumir embættismenn sem réðu stjórnvöldum heilt í samtölum við einkavini sína og forðuðustþá sem ekki voru viðhlægendur.

Bréf á blindraletri sent til félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Í gær barst mér bréf frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu þar sem greint var frá skipan nýs forstjóra Þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, en ég var einn umsækjenda. Þar sem ég tel skipun hins nýja forstjóra orka tvímælis hef ég sent ráðuneytinu bréf í morgun og er það fyrsti liður í þeirri viðleitni minni að leita réttar míns í þessu máli. Bréfið er skrifað á blindraletri.


Nýfundin kvikmund um Akureyri eftir Evu Braun, ástkonu Hitlers

Nýlega fannst óklippt myndefni úr fórum Evu Braun, ástkonu Hitlers, frá því er hún kom hingað til lands með þýsku skemmtiferðaskipi árið 1939. Áður hafa verið kunnar kvikmyndir hennar frá Vestmannaeyjum og Reykjavík, en nú er komið í ljós talsvert myndefni frá Akureyri, en þangað kom hún 17. júlí árið 1939.

Heimildamaður bloggsins mun greina nánar frá þessum kvikmyndafundi í akureyrskum fjölmiðlum í næstu viku.


Styrkir íhaldið stöðu sína?

Það er haft eftir einum af reyndustu starfsmönnum Morgunblaðsins að eftir eigi að koma í ljós hvort nýir eigendur kunni að eiga fjölmiðil.

Þegar litið er yfir nöfn þeirra sem tengjast Þórsmörk fer ekki hjá því að sá grunur læðist að sumum að hópurinn sé fremur einsleitur. Guðbjörg Matthíasdóttir hefur þar nokkra sérstöðu. Þau hjónin áttu Eyjafréttir og veit ég að Sigurður gætti þess jafnan að skipta sér ekki af ritstjórn blaðsins endaþótt honum fyndist stundum að útgerðarmönnum vegið eða soðningaríhaldinu eins og Oddsteinn Friðriksson kallaði útgerðarmenn í hópi sjálfstæðismanna.

Sjávarútvegurinn styrkir mjög stöðu sína í blaðaheiminum hér á landi ef menn vilja hugsa þannig. En forystumaður hópsins er margreyndur í viðskiptum og veit sjálfsagt jafnvel og meginþorri þjóðarinnar að illa fara saman fjölmiðlun og þröng pólítísk sjónarmið.

Í athyglisverðu fylgiblaði Morgunblaðsins í dag kemur í ljós að búist er við að auglýsingar dragist saman um 30% hér á landi í ár. Það verður því þungur róður nýjum eigendum og starfsmönnum Árvakurs í byrjun.

Það er erfitt að gerast spámaður í eigin föðurlandi en margt bendir til að 365 miðlar muni fara halloka á markaðinum. Í samdrættinum kemur betur í ljós hvað samkeppnisumhverfið hér á landi lýtur ólíkum lögmálum því sem gengur og gerist í fjölmennari ríkjum. Því gæti farið svo að ríkisútvarpið og Árvakur yrðu að mestu leyti tvö um hituna auk ýmissa netmiðla sem munu gegna meira hlutverki eftir því sem tímar líða fram.


Ósannindi DV um Helga Benediktsson frá Vestmannaeyjum

Í brennidepli á dv.is er birt samantekt um Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Ljúka þar allir, sem til Kjartans þekkja, upp einum munni um það hvílíkur ágætis maður hann er. Kjartan þekkti ég í menntaskóla og fór jafnan vel á með okkur. Hefur svo verið síðan enda er hann hinn vænsti maður, hefur það sjálfsagt frá móður sinni.

Í samantekt DV kemur fram að Kjartan hafi verið getinn í Vestmannaeyjum en Gunnar Pálsson, faðir hans, sem Jónas frá Hriflu kallaði stórdómara, stjórnaði þá aðför að föður mínum vegna meintra auðgunarbrota og annars sem aldrei sannaðist, enda bar allur málareksturinn vott af þeim heiftarlegu pólitísku ofsóknum sem þá voru stundaðar á Íslandi. DV segir að Helgi þessi hafi gerst sekur um auðgunarbrot. Því sendi ég Reyni Traustasyni eftirfarandi bréf.

Sæll, Reynir. Ég las samantekt ykkar um Kjartan Gunnarsson, næstvaldamesta mann Íslands og tek undir flest sem sagt er um hann. Við vorum saman í menntaskóla og voru samskipti okkar jafnan góð. Hann vildi hins vegar aldrei segja mér hverra manna hann var og þótti mér það undarlegt þar til ég vissi hver faðir hans var og kem ég nú að meginefni þessa bréfs. Í samantekt ykkar er réttilega greint frá því að Kjartan hafi komið undir í Vestmannaeyjum þegar ofsóknir Sjálfstæðisflokksins gegn Helga Benediktssyni, útgerðar- og athafnamanni, stóðu sem hæst. DV heldur því fram að hann hafi gerst sekur um auðgunarbrot. Hið sanna er að aldrei tókst að sanna auðgunarbrot á Helga Benediktsson. Löngu síðar var hann dæmdur í Hæstarétti og sendur á Litlahraun. Sá dómur var mjög gagnrýndur á sínum tíma og hóf Helgi hungurverkfall þar. Hann var fluttur á sjúkrahús vorið 1961. Þar var hlynnt að honum og honum síðan sleppt. Helgi skrifaði um atburðina upp úr 1950 bækling sem kallast "Ég ákæri". Ég ráðlegg ykkur að kynna ykkur hann áður en þið farið fram með ósannar dylgjur um löngu látið fólk sem ber ekki hönd fyrir höfuð sér. Það sæmir þér hvorki sem ritstjóra né heiðvirðum blaðamanni að fara með svo staðlausa stafi sem þá sem orðin um auðgunarbrotið eru. Annað er að gerast sekur eða vera sakaður. Morgunblaðið fór mikinn á hendur Helga Benediktssyni á sínum tíma og lagði hann hreinlega í einelti. Í fyrsta sinn sem við Matthías Johannesen hittumst veturinn 2000 þakkaði ég honum fyrir að hafa birt opnugrein um föður minn í tilefni 100 ára afmælis hans. Svar Matthíasar var þetta: "Afstaða Morgunblaðsins til föður þíns er og verður ævarandi smánarblettur á blaðinu. En Arnþór, við erum menn framtíðarinnar og lifum ekki í fortíðinni." Þetta var drengilega mælt og naut ég þess m.a. að starfa sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu síðastliðin tvö sumur. Ég vona að þú komir leiðréttingu á framfæri. Kveðja, Arnþór Helgason Benediktssonar og Guðrúnar Stefánsdóttur ***************************************************** Arnþór Helgason, Tjarnarbóli 14, 170 Seltjarnarnesi. Símar: 5611703, 8973766 Netfang: arnthor.helgason@simnet.is Pistlar: http://arnthor.helgason.blog.is


Verðbólgan hjaðnar

Loksins virðist draga úr verðbólgunni. Þá ættu að skapast forsendur til að draga úr stýrivöxtum Seðlabankans. Eitt af meginmarkmiðum stjórnvaldar og þjóðarinnar allrar hlýtur að verða að skapa hér eðlilegt vaxtasamfélag sem byggir á öðru en vaxtafíkn. Íslendingar hafa verið vaxtafíklar og þess vegna fór sem fór. Um þetta erum við Vilhjálmur Bjarnason sammála.


Heimilishljóðin

Ókosturinn við blinduna og atvinnuleysið er sú einangrun sem þessi fyrirbæri geta haft í för með sér. Höfuðborgarsvæðið r orðið þannig að dýrt er og óþjált að koma sér á milli staða. Það bjargar þó miklu hjá mér að bæjarfélagið hefur verið mjög þjált í samningum um ferðaþjónustu og ber að þakka það sem vel er gert.

En tíminn líður og ævinlega er hægt að sýsla talsvert sér til gagns og gamans. Í gær hljóðritaði ég nokkur heimilishljóð. Ég hef svo sem dundað mér við slíkt nokkuð lengi en ákvað að bæta í safnið enda lengi ætlað að útvarpa slíkri samantekt. Á morgun verður því útvarpað heimilishljóðum í þættinum "Vítt og breitt", en pistlar mínir eru yfirleitt á dagskrá upp úr kl. 13:45. Við hljóðritanir þessar hef ég notað Nagra ARES-M og ARES BB+ auk Shure VP88 víðómshljóðnema. Gallinn við hann er sá að honum fylgir dálítið suð sem þó kemur ekki að sög þegar hávaðinn dynur yfir. En þessi hljóðnemi hentar ekki til að hljóðrita umhverfishljóð i náttúrunni.

Það hefur valdið mér nokkrum vandræðum að USB-hljóðkort, sem ég á, nýtist ekki við ferðatölvuna af einhverjum ástæðum. Vélin frýs og gefur jafnvel frá sér 800 riða óánægjutón. Ég hljóðrita því allar kynningar á Nagra-hljóðritann og færi síðan yfir á tölvuna.

Ýmislegt er á döfinni í pistlum mínum og vænti ég þess að geta bætt við einhverjum hljóðritum á næstunni auk einhvers fróleiks. Hljóðrit úr atvinnulífinu væri fróðlegt að gera og eru allar tillögur vel þegnar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband