Nú er lag

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir m.a.:

“Endurmeta ber sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. “

Nú er lag. Ætlar ríkisstjórnin að standa við þetta fyrirheit?

Í grein um launamál nokkurra starfsstétta sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag, var haft eftir Þorgerði Einarsdóttur að stéttum, þar sem konum eru fjölmennar, hefði gengið illa að ná jafnræði við þær stéttir sem karlar skipa einna helst. Minntist hún m.a. á að erfiðara þætti að lyfta 50 kg sementspoka en að sinna sjúklingi sem ærið oft þyrfti að lyfta. Þá þætti vinna við bensín og smurolíu óþrifalegri en meðhöndlun saurs, þvags og annarra líkamsvessa.

Íslendingum hefur gengið illa að jafna hlutskipti kvenna á vinnumarkaðinum og tölur sína að jafnrétti verði vart náð fyrr en liðið verður á öldina.

Ég man vart eftir öðru eins fylgi við nokkurn málstað sem kröfur ljósmæðra um afnám ríkjandi mismununar. Þjóðin virðist nær einhuga um hvaðgera skuli og þingmenn ásamt ráðherrum virðast sömu skoðunar. Á hverju strandar?


mbl.is Verkfall hefst á miðnætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það stórsyndsamlegt að veiða hvali?

Svo spyr Halldór Þorsteinsson, skólastjóri, í athyglisverðir grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Greinin er hér birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

"

FYRIR um það bil 15 árum var ég sem leiðsögumaður með blandaðan hóp af erlendum ferðamönnum, nánar tiltekið Breta, Þjóðverja og Hollendinga, á 10 daga hringferð um landið. Eftir kvöldverð á hótelinu okkar á Egilsstöðum, þar sem lundi hafði verið borinn fram sem aðalréttur kvöldsins, kom einn Englendingur, dagprúðasti náungi, en nokkuð þungur á svipinn og spurði mig hvernig á ósköpunum við gætum borðað þennan fallega fugl, greinilega ekki búinn að gleyma „páfunum“ sem hann hafði séð við Dyrhólaey. Ég svaraði honum með þeim orðum sem hér fara á eftir: „En hvað finnst þér um litlu lömbin?“ Hann svaraði svo spurningu minni með einu frönskættuðu orði: „touché“ sem færi sennilega best á að þýða svona á íslensku: „Þarna hittirðu naglann á höfuðið“ eða „Vel svarað“.

Það sem þykir ósiðlegt í einu landi er talið fullkomlega siðlegt í öðrum löndum. Ég hef ósjaldan heyrt erlenda ferðamenn hrópa upp yfir sig af fögnuði þegar þeir sáu lóur, hrossagauka á flugi eða þá spóa úti í móa og segja að hvergi væri betra að vera á skytteríi en einmitt hér og sjá því alls ekkert athugavert við það að leggja sér smáfugla til munns, sem okkur myndi aldrei detta í hug að gera. Þeim þykir aftur á móti viðurstyggilegt að við skulum borða augun úr sauðkindinni og henda svo heilanum sem að þeirra dómi er mesta lostæti.

Áður fyrr á neyðartímum þegar hungrið svarf að þjóðinni höfðum við Íslendingar takmarkað vit á því að nýta okkur það sem hendi var næst eins og t.a.m. allskyns skelfisk úr sjónum. Enginn leit við skötusel hvað þá heldur sveppum. Það eru ekki nema nokkrir áratugir síðan við fórum að tína þá fyrir alvöru. Hér mætti geta þess að við hjónin dvöldum um vikutíma í Hallormsstaðarskógi fyrir um 30 árum og lifðum næstum því á engu öðru en sveppum og vorum þá áreiðanlega eina sveppatínslufólkið í skóginum.

Nú væri kannski rétt að snúa sér að öðru, öllu alvarlegra máli. Á fundi stallsystranna, þeirra Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra Íslands og formanns Svikafylkingarinnar, vogaði sú síðarnefnda sér að minnast á ómannúðlega meðferð og pyntingar á föngum í Guantanamo á Kúbu. Sú bandaríska brást hin versta við og vildi fá að vita hvers vegna sú íslenska væri eiginlega að ybba gogg þar sem hún ásamt allri ríkisstjórn Íslands leyfði sér þá ósvinnu að styðja hrefnuveiðar á Íslandsmiðum. Hræsnarinn, Condoleezza Rice, gat vitanlega trútt um talað þar sem ríkisstjórn hennar heimilar hvalaveiðar á Alaskamiðum og það í æði stórum stíl. Að endingu finnst mér rétt að undirstrika það að hvorug þessara kvenna er ofarlega á vinsældalista mínum.

Er það ekki deginum ljósara að mannfólkið er lygilega móttækilegt fyrir hverskyns múgsefjun og lætur auðveldlega blekkjast af jafn vanstilltum og ábyrgðarlausum áróðursmeisturum og Watson.

Hafa menn í rauninni meiri samúð með hvölum sem skotnir eru á hafi út heldur en með hermönnum sem falla fyrir byssukúlum á vígvellinum?

Margir yrðu áreiðanlega vísir til að andmæla þessu með þeim fátæklegu og fáfengilegu rökum að stríð eða styrjaldir væru óaðskiljanlegur hluti af athöfnum mannsins og brölti hans hér á jörðu. Aðrir vildu eflaust allt í sölurnar leggja til að reyna að losa okkur í eitt skipti fyrir öll við þennan ljóta og hvimleiða fylgifisk þeirra, þ.e. athafnanna.

Mannkærleikur er því miður af skornum skammti hér í heimi og fæstum þykir nokkuð athugavert við það að drepa mann og annan og sumir prestar eru jafnvel svo siðbrenglaðir að þeir standa beint eða óbeint með sínum mönnum ekki fjarri sjálfum vígvellinum, virðandi að vettugi boðorð sem segir: „Þú skalt ekki mann deyða.“ Væri okkur því ekki nær að reka áróður gegn hverskyns stríðsrekstri í heiminum og viðbjóði eins og t.d. nautaati heldur en að vera að amast við hvalveiðum? Það væri heldur ekki úr vegi að beina spjótum að gæsabændum á stöðum eins og Suður-Frakklandi þar sem þeir troða miskunnarlaust fæðu með trekt ofan í kokið á vesalings fuglum til þess að fita þá og þeir eyða sinni skömmu ævi í búrum, gargandi af sársauka. Ég held að Frökkum væri fyrir bestu að hætta að guma af sinni frægu gæsalifur (foie gras).

Væri ekki óskandi að Alþjóðahvalveiðiráðið tæki einu sinni á sig rögg og endurskoðaði afstöðu sína og leyfði hvalveiðar á nýjan leik um öll heimsins höf. Til þess meðal annars að lina þjáningar milljóna og aftur milljóna manna sem líða sárasta skort og hreinlega lepja dauðann úr skel. Fyrir utan að seðja hungur sveltandi þjóða og gæti þetta líka orðið kærkomin lyftistöng bæði í efnahags- og atvinnulífinu og enginn þarf að fúlsa við hvalkjöti, segir sá sem þessar línur ritar, enda er það herramannsmatur.

Höfundur er skólastjóri Málaskóla Halldórs.

"


Leiðsöguhundar blindra

Innan skamms verða fyrstu leiðsöguhundar blindra um langt skeið afhentir. Undanfarin ár hefur aðeins einn hundur verið við slík störf hér á landi en hann er nú kominn að fótum fram.

Það er stórt framfaraskref stigið ef leiðsöguhundar verða viðurkenndir sem almennt hjálpartæki blindra hér á landi. Óumdeilanlegt er að þeir bæta mjög lífsgæði þessa hóps og gera hann mun sjálfstæðari.

Vafalítið hefur hið mikivæga kyningarstarf Helenu Björnsdóttur, íslenskrar konu sem býr í Noregi, skilað sér í þessum efnum, en Helena bloggaði um nokkurt skeið um samstarf sitt og leiðsöguhundsins Fönix.

Sjálfur hef ég ekki hugsað mér að fá mér leiðsöguhund og liggja til þess ýmsar ástæður. En mig langar að nota tækifærið og óska væntanlegum notendum til hamingju með hundana.


Lífeyrisþegar verði með í samráðinu

Þegar reynt verður að ná sátt um efnahagsmálin hér á landi er nauðsynlegt að þeir hópar, sem hafa farið varhluta af umbótum liðinna ára, verði hafðir með í ráðum. Brýnt er að gæta þess að hagur þeirra verði tryggður eigi síður en launþega. Þar á ég fyrst og fremst við ellilífeyrisþega og öryrkja.

Þá ber einnig að stefna að því að jafna rétt öryrkja á almennum atvinnumarkaði svo að þeir geti í raun leitað réttar síns.


mbl.is Reynt að ná víðtækri sátt á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að giftast mömmu sinni

Birgir Þórsem er á fjórða ári, trúði afa fyrir því í dag að vinkona hans á leikskólanum ætlaði ekki að giftast honum heldur mömmu sinni. Afi sagði honum að börn gætu nú ekki gifst foreldrum sínum og ætlar snáðinn að segja vinkonunni þetta.

Afi spurði hvort Birgir ætlaði að gifta sig þegar hann yrði stór og játti hann því. Auðvitað ætlar hann að giftast vinkonunni og bjóða afa í brúðkaupið.


Hvaða ráðamenn fóru á Ólympíuleika fatlaðra?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, er ánægð með að hafa verið viðstödd upphaf Ólympíuleikanna í Beijing og hafa farið aftur þegar Ísledingar léku um silfrið. Er það afar skiljanlegt.

Af hverju fór hún ekki í þriðja sinn þegar Ólympíuleikar fatlaðra hófust? Eru íþróttir fatlaðra ekki á hennar sviði?

Einhver hvíslaði því að mér að Jóhanna Sigurðardóttir hefði farið og er það vel. En forsetinn situr heima.

Einhvern tíma hlýtur að líða að því að Ólympíuleikar fatlaðra og ófatlaðra verði haldnir samtímis og fólk fái að njóta sín þótt það sé eins og það er. Þá fyrst verður íþróttahugsjónin að veruleika.

Af fréttum að dæma hafa leikarnir vakið talsverða athygli austur í Kína. Lítið hefur hins vegar farið fyrir fréttaflutningi hér á landi af Ólympíuleikum fatlaðra í Beijing. Varð ég t.d. ekki var við að setningarathöfninni væri sjónvarpað. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort lokaathöfninni verði gerð betri skil.


mbl.is Myndi taka þessa ákvörðun aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins tíu milljónir ber á milli

Senn líður að því að þjóðin fái að reyna hvort ríkisstjórnin standi við þann ásetning sinn að rétta hlut kvenna.

Fyrir tæpum tveimur áratugum stóð Öryrkjabandalag Íslands í harðri baráttu við stjórnvöld. Fréttastofurnar voru ófáanlegar til að greina frá málstað bandalagsins en fjölluðu þeim mun meira um hjúkrunarfræðinga sem hótuðu verkfalli.

Þegar málin stóðu sem hæst hitti ég ónefndan yfirmann eins fjölmiðilsins í sturtu í sundlaug Seltjarnarness og tókum við tal saman enda kunningjar til margra ára. Benti ég honum á að hjúkrunarfræðingarnir væru einungis nokkur hundruð en öryrkjarnir skiptu þúsundum.

"Þið hafið engin fjárhagsleg áhrif," svaraði hann.

Kannski er þetta mergurinn málsins. Ljósmæðurnar eru 100 og það kostar 10 milljónir á mánuði að verða við réttmætum kröfum þeirra. Annaðhvort er það svo lítið að það taki því ekki eða þúfan sem veltir einhverju hlassi. Og hvaða hlassi? Ætli fjármálaráðherra geti svarað því?

Hafa ljósmæðurnar ekki nægilega mikil fjárhagsleg áhrif?


Sagan af alvitru feðgunum

Það er sagt að nú sé farið að halla undan fæti fyrir Kim Jong Il, syni Kim Il Sung, hins mikilhæfa leiðtoga Norður-Kóreumanna, hinum mikla sigurvegara og perlu allra perlna, eins og hann var nefndur í formála einnar bókar sinnar. Kim Jong Il hefur ekki farið vel með sig. Hann hefur lifað í vellystingum á meðan þegnar hans hafa soltið og drukkið heldur mikið. Hann er þó varkár að eðlisfari og hefur sjaldan eða aldrei stigið upp í flugvél. Þegar hann hefur farið til útlanda hefur hann notað járnbrautarlestir.

Fyrir 22 sumrum vorum við tveir vinir í Beijing og biðum eftir unnustu hans sem var úti á landi. Hlustuðum við þá gjarnan á norður-kóreanska útvarpið okkur til uppbyggingar og skemmtunar. Minnist ég sérstaklega einnar sögu sem þar var sögð.

Um þetta leyti var verið að reisa mikið raforkuver þar í landi og gekk allt á aftrfótunum. Malbikið í vegunum bránaði í hitunum og steypan var einhvern veginn ekki nóguþétt í sér.

Þeir feðgar áttu leið um og skoðuðu framkvæmdir. Héldu þeir fund með verkfræðingunum og bentu þeim á sitthvað sem betur mætti fara. Og viti menn! Allt gekk eins og í sögu og framkvæmdir gengu eftir það samkvæmt áætlun.

Skyldu íslenskir ráðherrar geta leikið þetta eftir?


mbl.is Kim Jong Il alvarlega veikur eða jafnvel látinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnuleysi

Um helgina fjallaði Morgunblaðið um það hvort hér ríkti kreppa eða hallæri. Sennilega ríkir nú hvorugt. Ætli ástandið megi ekki telja svo sem í meðalllagi eðlilegt.

Þegar litið er yfir atvinnuauglýsingar um helgina kemur í ljós að talsvert framboð er af atvinnu. Þó er varla nokkurt starf sem ég þori að sækja um. Mér hefur einna helst flogið í hug starf sáttasemjara ríkisins. Ætli næsti sáttasemjari verði ekki kona?

Ekkert starf virðist nú laust við fjölmiðlun, en þar ímynda ég mér að ég kunni einna best til verka, a.m.k. á sumum sviðum. Myndvinnslan vefst einnahelst fyrir mér.


Píanóverk Þorkels Sigurbjörnssonar

Tíbráin í Salnum hófst í gær með tónleikum til heiðurs Þorkatli Sigurbjörnssyni, tónskáldi, en hann varð sjötugur fyrir nokkru. Kristín Jónína Taylor flutti á tónleikunum öll píanóverk Þorkels.

Nokkur þessara verka hafði ég heyrt áður. Flutningurinn var nær óaðfinnanlegur og var greinilegt að Kristín naut þess að flytja verk Þorkels.

Greina mátti nokkra þróun í gerð verkanna. Eftir því sem á leið urðu þau lagrænni. Verkin eru ekki stór í sniðum en krefjast sum mikillar færni og jafnvel einbeitingar þess sem hlustar eins og góð verk gera iðulega enda eru þetta tónverk en ekki tónverkir

Mörg verkanna eru hreinar perlur sem eiga vafalítið eftir að endast út þessa öld og lengur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband